Þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar var opnað 1.september 2003 í Ráðhúsinu, Strandgötu 6. Nú geta bæjabúar sótt nánast alla þjónustu á einn og sama staðinn. Í þjónustuverinu er öll almenn afgreiðsla og símsvörun, þar er upplýsingagjöf um deildir og stofnanir bæjarins. Þar er m.a. hægt að nálgast umsóknir, borga reikninga og sækja um lóðir. Í þjónustusamningunum er lýst þeim þáttum sem þjónustuver sinnir í umboði sviðanna og með faglegum stuðningi þeirra. Með þessu vinnulagi á öllum að vera ljóst hvernig unnið er og þá ætti jafnframt að vera auðvelt að benda á atriði ef úrbóta er þörf. Fyrst í stað er gildistími samninganna stuttur og er það gert í því augnmiði að færa inn leiðréttingar og endurbætur. Í samningunum er gert ráð fyrir reglulegu samráði þjónustuvers við stjórnendur sviðanna. Á þeim vettvangi verða teknar upp ábendingar um það sem betur má fara í þjónustu bæjarins.
Verið velkomin í þjónustuverið
| Gjaldskrá Bókasafns Hafnarfjarðar |
| Gjaldskrá leikskóla |
| Gjaldskrá fyrir leyfi og þjónustu skipulags og byggingarfulltrúa |
| Fasteignagjöld |
| Gatnagerðargjöld |
| Gatnagerðargjöld - eldri |
| Sala á byggingarrétti |