Skipulags- og byggingarsvið
Sviðsstjóri  er Bjarki Jóhannesson.   Aðsetur: Strandgata 8 -10 3.hæð.

Undir skipulags- og byggingarsvið falla skipulags- og byggingarmál, umhverfis- og hönnunarmál og staðardagskrá 21. 

Skipulags- og byggingarsvið  fellur undir skipulags- og byggingarráð, formaður ráðsins er Gisli Valdimarsson.

Um skipulags- og byggingaráð

Bæjarstjórn skal á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa fimm fulltrúa í skipulags- og byggingaráð til eins árs og jafnmarga til vara. Bæjarstjórn getur heimilað flokki eða framboðsaðila sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki hefur fengið kjörinn fulltrúa í skipulags- og byggingaráð að tilnefna fulltrúa til setu í ráðinu með málfrelsi og tillögurétt. Skylt er bæjarstjórn að gefa fulltrúa flokks/framboðsaðila kost á setu í ráðinu með málfrelsi og tillögurétt þann tíma sem fundir bæjarstjórnar falla niður vegna sumarleyfa.

Skipulags- og byggingaráð skal að jafnaði halda fund á föstum tíma eigi sjaldnar en tvisvar í mánuði. Aukafundi skal halda ef bæjarstjóri, formaður ráðsins eða a.m.k. tveir ráðsmenn óska þess.

Sviðsstjóri skipulags- og byggingarsviðs undirbýr ráðsfundi í samráði við formann og forstöðumenn deilda. Hann sér um að skipulags- og byggingaráð sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. einum sólarhring fyrir fund. Geti ráðsmaður ekki sótt fund skal hann boða varamann í sinn stað.
1) 7. gr. samþykktar nr. 804, 2003.

Formaður skipulags- og byggingaráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar ráðsins. Heimilt er að taka mál til meðferðar í skipulags- og umhverfisráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver ráðsmanna óskar þess.

Skipulags- og byggingaráð fer með mál sem heyra undir lög nr. 73/1997 um skipulags- og byggingarmál, lög nr. nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum, lög um umferðarmál og staðardagskrá. Skipulags- og byggingaráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu einstakra mála sem það fær til meðferðar. Þá getur bæjarstjórn falið skipulags- og byggingaráði fullnaðarafgreiðslu mála nema lög mæli á annan veg. Í því skyni að stuðla að hagræðingu skilvirkni og hraðari málsmeðferð er heimilt að ákveða að fela öðrum aðilum en skipulags- og byggingaráði afgreiðslu mála sem ekki varða verulega fjárhag sveitarfélagsins. Afgreiðslum slíkra mála má þó ætíð skjóta til skipulags- og byggingaráðs eða bæjarstjórnar. Skipulags- og byggingaráð setur nánari reglur um notkun slíkra heimilda og skulu þær staðfestar í bæjarstjórn.

Nefndir sem heyra undir skipulags- og byggingaráð:
Umhverfisnefnd/ Staðardagsskrá 21




Hafnarfjarðarbær | Kennitala 590169-7579 | hafnarfjordur@hafnarfjordur.is
Ráðhúsi Hafnarfjarðar | Strandgötu 6 | 220 Hafnarfirði | Sími 585 5500 | Bréfsími 585 5509