Námskeið - grunnskólar

Skólaskristofa Hafnarfjarðar stendur fyrir námskeiðahaldi fyrir grunnskóla og þá mest fyrir kennara og skólastjórnendur. Námskeið eru margvísleg, mismunandi eftir árum og misumfangsmikil. Breytingar hafa gerst á endurmenntun kennara hin síðustu ár og eru námskeið sem Hafnarfjarðarbær stendur fyrir bundin af styrkveitingum frá menntamálaráðuneyti hin síðustu ár, þ.e. af þeim fjárveitingum sem veittar eru úr endurmenntunarsjóði grunnskóla. Þess utan halda einstaka grunnskólar námskeið fyrir sína starfsmenn.

Hér verða kynnt námskeið á vegum Skólaskrifstofunnar. Skráning á námskeið gerist á netfangið vigfus@hafnarfjordur.is. Námskeið Skólaskrifstofunnar eru ætluð starfsfólki grunnskóla í Hafnarfirði en einnig starfsfólki í Álftanesskóla á ÁLftanesi og Grunnskóla Grindavíkur og er þátttaka þeim að kostnaðarlausu. Starfsfólk í skólum í öðrum sveitarfélögum getur komist á námskeiðin séu þau ekki fullnýtt og greiðir þá fullt gjald fyrir þátttöku í þeim.

Námskeið skólaárið 2008-2009:

Námskeið voru skipulögð fyrir fjögur þemu skólaárið 2008-2008. Handbækur námskeiðanna er hægt að nálgast hér:

  • Námskeiðshandbók haustannar 2008.
  • Námskeiðshandbók vorannar 2009.

Námskeið skólaárið 2007-2008:

Námskeið voru skipulögð fyrir sjö þemu skólaárið 2007-2008. Námskeiðin sem boðið var upp á voru milli 30 og 40 og er hægt að kynna sér þau í handbókunum hér:

Námskeiðin skólaárið 2006-2007:

Sérstök námskeiðsbók hefur verið gefin út um námskeiðin og er hana að finna hér.

Námskeiðin skólaárið 2005-2006 eru fjögur:

  1. Einstaklingsmiðað nám,
  2. Árangursríkari og markvissari stjórnun - betri skóli,
  3. Lýðheilsa og
  4. Umsjónarkennarinn.

Til að sjá nánari dagskrá þeirra og tímasetningar skal smella hér.

Kynningar á námskeiðum fyrri skólaára eru ekki á vefnum.

 

FRÆÐSLUSVIÐ  HAFNARFJARÐAR


Fræðslusvið Hafnarfjarðarbæjar annast fræðslumál bæjarins en undir þau heyra leikskólar, grunnskólar, tónlistarskóli, Námsflokkar Hafnarfjarðar - Miðstöð símenntunar og PMT-FORELDRAFÆRNI.

Fyrir fræðslumálunum fer fræðsluráð Hafnarfjarðar sem heldur fundi á tveggja vikna fresti. Formaður fræðsluráðs er Ellý Erlingsdóttir (elly.e@hafnarfjordur.is).

Skrifstofa fræðslusviðs er Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar sem er til húsa að Strandgötu 31, sími 585 5800 og bréfasími 585 5809. Netfang: skolaskr@hafnarfjordur.is. Fræðslustjóri er Magnús Baldursson, netfang  magnusb@hafnarfjordur.is, sem jafnframt er sviðsstjóri fræðslusviðs Hafnarfjarðarbæjar.

Fyrir Hafnarfjarðarbæ er í gildi skólastefna sem tók gildi árið 2005. Hér má nálgast hana: Skólastefna Hafnarfjarðar (2005).



 



 Fundagerðir   Útgefið efni   Gagnlegt - flýtileiðir
Skólastefna Hafnarfjarðar ( 3 Mb )
Skólavefritið
Upphaf grunnskólagöngu - 6 ára bæklingur
Ársskýrsla leikskóla ( 5 Mb )
Eyðublöð/Umsóknir
Sækja um leikskóla
Félög og forsvarsmenn þeirra


Hafnarfjarðarbær | Kennitala 590169-7579 | hafnarfjordur@hafnarfjordur.is
Ráðhúsi Hafnarfjarðar | Strandgötu 6 | 220 Hafnarfirði | Sími 585 5500 | Bréfsíma 585 5509