FRÆÐSLUSVIÐ HAFNARFJARÐAR
Fræðslusvið Hafnarfjarðarbæjar annast fræðslumál bæjarins en undir þau heyra leikskólar, grunnskólar, tónlistarskóli, Námsflokkar Hafnarfjarðar - Miðstöð símenntunar og PMT-FORELDRAFÆRNI.
Fyrir fræðslumálunum fer fræðsluráð Hafnarfjarðar sem heldur fundi á 2ja vikna fresti yfir skólaárið. Formaður fræðsluráðs er Ellý Erlingsdóttir (elly.e@hafnarfjordur.is).
Skrifstofa fræðslusviðs er Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar sem er til húsa að Strandgötu 31, sími 585 5800, bréfasími 585 5809. Netfang: skolaskr@hafnarfjordur.is. Fræðslustjóri er Magnús Baldursson (magnusb@hafnarfjordur.is) sem jafnframt er sviðsstjóri fræðslusviðs Hafnarfjarðarbæjar.
Fyrir Hafnarfjarðarbæ er í gildi skólastefna sem tók gildi árið 2005. Hér má nálgast hana: Skólastefna Hafnarfjarðar (2005).
Fundagerðir |
Útgefið efni |
Gagnlegt - flýtileiðir |
|||||||||
|
|