Undir fjölskyldusvið falla íþrótta- og tómstundamál, forvarnir ,félagsþjónustan og menningar- og ferðamál.
Fjölskyldusvið heyrir undir fjölskylduráð. Formaður fjölskylduráðs er Guðmundur Rúnar Árnason.
Um fjölskylduráð.
Bæjarstjórn skal á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa fimm fulltrúa í fjölskylduráð til eins árs og jafnmarga til vara. Bæjarstjórn getur heimilað flokki eða framboðsaðila sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki hefur fengið kjörinn fulltrúa í fjölskylduráð að tilnefna fulltrúa til setu í ráðinu með málfrelsi og tillögurétt. Skylt er bæjarstjórn að gefa fulltrúa flokks/framboðsaðila kost á setu í ráðinu með málfrelsi og tillögurétt þann tíma sem fundir bæjarstjórnar falla niður vegna sumarleyfa.
Fjölskylduráð skal að jafnaði halda fund á föstum tíma eigi sjaldnar en tvisvar í mánuði. Aukafundi skal halda ef bæjarstjóri, formaður ráðsins eða a.m.k. tveir ráðsmenn óska þess.
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs undirbýr ráðsfundi í samráði við formann. Hann sér um að fjölskylduráð sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. einum sólarhring fyrir fund. Geti ráðsmaður ekki sótt fund skal hann boða varamann í sinn stað.
Formaður fjölskylduráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar ráðsins. Heimilt er að taka mál til meðferðar í fjölskylduráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver ráðsmanna óskar þess.
Fjölskylduráð fer með mál sem heyra undir lög nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga og barnaverndarlaga nr. 80/2002, barnalaga nr. 20/1992, lög nr. 44/1998 um húsnæðismál og fleiri lög sem varða málin sem heyra undir ráðið. Fjölskylduráð fer einnig með öldrunarmál, æskulýðs-, tómstunda- og íþróttamál [og forvarnir samkvæmt lögum um lýðheilsustöð, og heilbrigðismál, nr. 18, 2003].1)
1) 4. gr. samþykktar nr. 804, 2003.
Fjölskylduráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu einstakra mála sem það fær til meðferðar. Þá getur bæjarstjórn falið fjölskylduráði fullnaðarafgreiðslu mála nema lög mæli á annan veg.
Í því skyni að stuðla að hagræðingu skilvirkni og hraðari málsmeðferð er heimilt að ákveða að fela öðrum aðilum en fjölskylduráði afgreiðslu mála sem ekki varða verulega fjárhag sveitarfélagsins. Afgreiðslum slíkra mála má þó ætíð skjóta til fjölskylduráðs eða bæjarstjórnar. Fjölskylduráð setur nánari reglur um notkun slíkra heimilda og skulu þær staðfestar í bæjarstjórn.
Nefndir sem heyra undir fjölskylduráð:
Barnaverndarnefnd.
Íþrótta- og tómstundanefnd.
Forvarnarnefnd.]1)
1) 5. gr. samþykktar nr. 804, 2003
Menningar - og ferðamálanefnd.