Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 13. september 2005 að auglýsa til kynningar deiliskipulag vegna Undirhlíðar í Hafnarfirði í samræmi við  25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br.

Deiliskipulagið tekur til svæðis við Undirhlíðanámu við Bláfjallaveg í Hafnarfirði, um 400.000 fermetra. Deiliskipulagið felur í sér meginmarkmið:  Að tryggja skipulagða efnistöku, þannig að efnistaka og frágangur haldist í hendur og að vinnsla fari öll fram skv. lögum og reglum og að framtíðarsýn sé mótuð fyrir svæðið og notkun þess.

Greinargerð og skipulagsskilmálar (7 MB)

Deiliskipulagsuppdráttur 1.hluti (4 MB)

Deiliskipulagsuppdráttur 2.hluti (6 MB)

Deiliskipulagsuppdráttur 3.hluti (0,5 MB)

Deiliskipulagsuppdráttur 4.hluti (5 MB)

Deiliskipulagið verður til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6, frá 30.september – 28. október 2005. Nánari upplýsingar eru veittar á umhverfis- og tæknisviði.
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til umhverfis- og tæknisviðs Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 11. nóvember 2005.

Þeir sem ekki gera athugasemd við breytinguna teljast samþykkir henni.
Umhverfis- og tæknisvið Hafnarfjarðar.


 Fundagerðir   Útgefið efni   Gagnlegt - flýtileiðir
Þriggja ára áætlun 2009-2011
Fjárhagsáætlun 2007
Ársreikningur 2007
Innkaupastefna
Kortavefurinn
Íbúavefurinn
Sorphirðudagatal
Ýmis eyðublöð

Hafnarfjarðarbær | Kennitala 590169-7579 | hafnarfjordur@hafnarfjordur.is
Ráðhúsi Hafnarfjarðar | Strandgötu 6 | 220 Hafnarfirði | Sími 585 5500 | Bréfsíma 585 5509