22. janúar 2007

Tillaga að nýju deiliskipulagi Hellnahraun 3. áfanga í Hafnarfirði

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar, samþykkti á fundi sínum þann 12. desember 2006, að auglýsa til kynningar tillögu að nýju deiliskipulagi Hellnahraun 3. áfanga í Hafnarfirði, í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br.

Um er að ræða 100 misstórar atvinnulóðir undir léttan, hreinlegan iðnað og skylda starfsemi.  Stærð skipulagssvæðis er um 58 ha.  Svæðið er staðsett sunnan Reykjanesbrautar með tengingu frá Krísuvíkurvegi og Hellnahrauni 2. áfanga.  Deiliskipulagið er í samræmi við auglýsta tillögu að Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 sem er aðgengileg á vefsíðu Hafnarfjarðar.

 Tillaga að nýju deiliskipulagi Hellnahraun 2. áfanga í Hafnarfirði.

Um er að ræða 53 misstórar lóðir undir léttan, hreinlegan iðnað á um 50 ha landsvæði.  Svæðið er staðsett sunnan Reykjanesbrautar með tengingu frá Krísuvíkurvegi og Hellnahrauni 1. áfanga norðan megin og Hellnahrauni 3. áfanga sunnan megin.

Deiliskipulögin ásamt skilmálum verða til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6, frá 22. janúar 2007 – 19. febrúar 2007. Nánari upplýsingar eru veittar á skipulags- og byggingarsviði.

Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til skipulags- og byggingarsviðs Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 5. mars 2007. Þeir sem ekki gera athugasemd við breytinguna teljast samþykkir henni.

Skipulags- og byggingarsvið Hafnarfjarðar.

Flýtileið á síðu um Hellnahraun 2 og 3





Hafnarfjarðarbær | Kennitala 590169-7579 | hafnarfjordur@hafnarfjordur.is
Ráðhúsi Hafnarfjarðar | Strandgötu 6 | 220 Hafnarfirði | Sími 585 5500 | Bréfsíma 585 5509