Skipulags- og byggingarfulltrúi

Skipulags- og byggingarfulltrúi fjallar um byggingarleyfisumsóknir sem berast og ályktar um úrlausn þeirra til skipulags- og byggingarráðs/bæjarstjórnar. Einnig ber honum að hafa eftirlit með því að byggt sé í samræmi við gildandi skipulag, samkv.skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarfulltrúi annast m.a. úttektir og eftirlit með byggingarframkvæmdum og að farið sé eftir byggingarreglugerð og sér um lóðaskráningu og skráningu fasteignamats samkv. byggingarreglugerð nr. 441/1998....



Fréttir af skipulagi og framkvæmdum
29. ágúst 2008

Fasteignafélag Hafnarfjarðar óskar eftir tilboðum í frjálsíþróttagólf í Íþróttamiðstöðina Kaplakrika. Útboðsgögn verða afhent frá þriðjudeginum 2. september 2008 í gegnum vef VSB, verkfræðistofu. Veffangið er www.vsb.is Fyrirspurnir vegna verksins berist til VSB í netfangið aki@vsb.is Tilboð skal skila fyrir þriðjudaginn 16. september næstkomandi, að Norðurhellu 2,...


11. ágúst 2008

Mánudaginn 18. ágúst kl. 17.30 verður haldinn kynningarfundur á tillögu að deiliskipulagi fyrir Öldugötu, Öldutún 2-6, Ölduslóð 1-10 og Hringbraut 1-15. Fundurinn verður haldinn í fyrirlestrarsal Lækjarskóla. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að mæta á fundinn. Hér er hægt að...


11. ágúst 2008

Miðvikudaginn 13. ágúst kl. 17.00 verður haldinn kynning fyrir íbúa í næsta nágrenni við leikskólann Norðurberg. Kynntar verða breytingar við leikskólann og hugmyndir að úrbótum umferðamála í nálægum götum. Fundurinn verður haldinn í leikskólanum Norðurbergi. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að...





Hafnarfjarðarbær | Kennitala 590169-7579 | hafnarfjordur@hafnarfjordur.is
Ráðhúsi Hafnarfjarðar | Strandgötu 6 | 220 Hafnarfirði | Sími 585 5500 | Bréfsíma 585 5509