Menningarstefna Hafnarfjarðarbæjar

Leiðarljós: Menningarstarf í Hafnarfirði tekur mið af fjölbreytileika mannlífsins og menningarlegur uppeldi barna og unglinga. Bærinn eflist sem menningarbær með metnaðarfullu lista-, menningar- og mannlífi. Menning og listir tengjast skóla- og æskulýðsstarfi, tómstundarstarfi aldraðra, varðveislu, umhverfismálum og menningartengdri ferðaþjónustu.

Fjölbreytileiki og almenn þátttaka: Í Hafnarfirði þrífst fjölbreytilegt menningarlíf og skal lagt kapp á að skapa umhverfi sem orkar hvetjandi á list- og menningarsköpun. Menningarstarf mótist af og taki tillit til áhuga og þarfa íbúa og gesta.

Leiðir
• Gerðar séu kannanir á áherslum og viðhorfum Hafnfirðinga til menningarmála, menningarstofnanna og menningartilboða.
• Gerðir séu samningar við stærstu menningarfélög og félagasamtök til að tryggja þeim rekstrargrundvöll og möguleika á markvissara menningarstarfi.
• Styrkir til menningarmála taki mið af fjölbreytileika.
• Bjartir dagar, lista- og menningarhátíð Hafnarfjarðar, festi sig í sessi og miði að því að efla mannlíf og menningu í bænum, auk þess að koma hafnfirskum listamönnum og hafnfirskri menningu á framfæri.
• Útnefndur verði bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árlega.

Börnum og unglingum gefist kostur á að kynnast hinum margbrotna heimi menningarinnar. Menningarstofnanir kynni börnum og unglingum starf sitt og stuðli að frjóu samstarfi við skóla og æskulýðsstarf í bænum.

Leiðir
• Menningarstofnanir ræki hlutverk sitt í menningar- og listuppeldi barna og setji sér markmið þar um í samráði við menningar- og ferðamálanefnd og fræðsluráð Hafnarfjarðar.
• Menningarstofnanir miðli hafnfirskri sögu og sérkennum bæjarins til grunnskólabarna í nánu samstarfi við skólayfirvöld.
• Menningarstofnanir kynni starfsemi sína menntastofnunum bæjarins, að lágmarki einu sinni á ári.
• Bókasafn Hafnarfjarðar hafi að leiðarljósi að lestur fyrir börn léttir framtíðarnám síðar meir á ævinni.
• Styrkir til listamanna tengist að hluta listuppeldi grunnskólabarna.
• Listviðburðir séu skipulagðir með þátttöku ungs fólks í huga.
• Þverfaglegt samstarf og samráð milli Skrifstofu menningarmála, Skólaskrifstofu og Íþrótta- og tómstundaskrifstofu.


Menningarstaf sé ávallt skipulagt með samstarf og virkni þátttakenda að leiðarljósi. Lýðræði og jafnrétti bæjarbúa sé í fyrirrúmi, með aðgengi að þekkingu, upplýsingum, sögu og nýsköpun í listum og menningu.

Leiðir
• Styrkir menningar- og ferðamálanefndar séu sýnilegir sem flestum.
• Menningarstofnanir kynni vel starfsemi sína og bjóði gestum leiðsögn og aðstoð við upplýsingaleit.
• Menningarstofnanir bæjarins setji sér það markmið að höfða til sem flestra og auki í því tilliti samstarf sín á milli.
• Tekið sé mið af þörfum gesta og leitast við að greiða götu fjölbreytilegra menningar.
• Jafnrétti kynja og menningarhópa verði ávallt haft að leiðarljósi í öllu menningarstarfi.


Menningarstofnanir Hafnarfjarðarbæjar
Menningarstofnanir Hafnarfjarðarbæjar séu leiðandi í að efla lista- og menningarlíf í Hafnarfirði. Þær tengist samfélaginu svo tekið verði eftir og veiti framúrskarandi þjónustu.

Leiðir
• Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar standi fyrir fjölbreyttri menningarstarfsemi á sviði myndlistar, tónlistar og annarra listgreina.
• Í bókasafni Hafnarfjarðar sé ávallt fjölbreyttur safnkostur sem endurspegli fordómalaust efnisval. Jafnframt veiti safnið notendum aðgang að nýjustu upplýsingar- og tölvutækni.
• Byggðarsafn Hafnarfjarðar safni, varðveiti og rannsaki minjar um menningarsögu Hafnarfjarðar og kynni þær almenningi. Safnið sé leiðandi í að miðla sögu bæjarfélagsins.
• Menningarstofnanir taki tillit til ólíkra þarfa og óska íbúanna eftir bestu getu.
• Menningarstofnanir haldi til haga viðhorfum og ábendingum gesta og taki mið af þeim við stefnumótun.
• Samstarf við listamenn, fræðimenn og aðra menningarstofnanir hér heima og erlendis verði eflt.

Bæjarbragur og Saga
Jákvæð sérkenni Hafnarfjarðar skulu varðveitt og lögð áhersla á vandað og skjólsælt bæjarumhverfi. Lögð verði áhersla á menningarstarfsemi sem hægt er að stunda utan dyra og styrkja muni miðbæinn.

Leiðir
• Vinna skuli að skráningu og verndun fornminja og annarra söguminja á svæðinu og að húsvernd samkvæmt reglum      Húsverndarsjóðs Hafnarfjarðar.
• Hlúð skuli að útilistaverkum Hafnarfjarðar.
• Tryggð sé varðveisla bárujárnshúsabyggðarinnar í hrauninu.
• Hellisgerði verði fjölskyldureitur.
• Menningartengdir viðburðir í tengslum við t.d. jólaþorpið sem ætlað er að efla verslun, menningu og menningarlíf í bænum.
• Samstarf og samráð á milli Skrifstofu menningarmála og Umhverfis- og tæknisviðs.


Hafnarfjarðarbær | Kennitala 590169-7579 | hafnarfjordur@hafnarfjordur.is
Ráðhúsi Hafnarfjarðar | Strandgötu 6 | 220 Hafnarfirði | Sími 585 5500 | Bréfsíma 585 5509