Það er mikið talað um mannauðinn í íslenskum fyrirtækjum. Við fjárfestum í mannauði og mannauðurinn á að leysa öll okkar mál. Þetta virkar stundum dálítið klisjukennt.
Síðasta vika hefur verið erilsöm og viðburðarík. Lítið tóm gefist til að sinna fjölskyldunni.
Þegar ég kom heim í gærkvöldi að afloknum vinnudegi og hitti börnin mín, þá rann upp fyrir mér ljós. Ég skildi loksins hvað mannauður er í raun og veru.