16. október 2008

Þau umbrot sem nú eiga sér stað í íslensku þjóðarbúi eru þess eðlis að flestir eiga erfitt með að gera sér fyllilega grein fyrir mögulegum afleiðingum. Öll óvissa veldur áhyggjum og kvíða, ekki síst varðandi hag heimila og fjölskyldna. Því skiptir miklu að viðbrögð stjórnvalda og skilaboð til þjóðarinnar séu skýr. Á sama hátt er mikilvægt að við höldum ró okkar og sýnum styrk okkar í samstöðu og samvinnu. Samstaðan er okkar styrkur og hún byrjar heima fyrir.
Við þær erfiðu aðstæður sem við nú tökumst á við, þá munu bæjaryfirvöld einhuga leggja höfuðáherslu á að tryggja rekstur sveitafélagsins með óbreyttu sniði og tryggja jafnframt þá almennu grunnþjónustu sem sveitarfélagið ber uppi. Það er okkar skylda og það er okkur mikilvægasta verkefni við þessar sérstöku aðstæður að standa vörð um grunnstoðir samfélagsins sem er okkar sameiginlega félag, bæjarfélagið. Okkar lykilverkefni verður brýnna nú en oftast áður, að halda úti öflugri grunn- og velferðarþjónustu við íbúa Hafnarfjarðar.
Sveitarfélögin í landinu munu standa þétt saman í samvinnu við ríkisstjórn, aðila vinnumarkaðarins og almannasamtök að treysta það þjónustu- og öryggisnet sem samfélagið okkar þarf nú á að halda. Sveitafélögin munu í sameiningu tryggja þá fjármögnun sem þörf er á til að halda úti öflugri þjónustu og einnig nauðsynlegum framkvæmdum á komandi misserum til að vinna sem kostur er gegn frekari áföllum á atvinnumarkaði. Hér á höfuðborgarsvæðinu hafa sveitarfélögin öll unnið náið saman að þessum verkefnum síðustu daga og munu efla og treysta enn frekar samstarf sitt.
Hafnarfjaðarbær hefur þegar gripið til ráðstafana til að styrka upplýsinga- og ráðgjafaþjónustu félagsþjónustunnar. Þá hafa bæjaryfirvöld boðið uppá bæði aðstöðu og samstarf við félagsmálaráðuneytið um samhæfða ráðgjafaþjónustu hér í bænum. Einnig hefur verið settur á laggirnar sérstakur aðgerðarhópur um almannaheill í samvinnu félagsþjónustunnar við heilsugæsluna í bænum, Rauða krossinn, sóknarpresta, lögreglu, skólayfirvöld, stjórnendur æskulýðs og íþróttmála, verkalýðsfélögin og alla þá sem koma að almannaheill í bæjarfélaginu. Það er mikilvægt að treysta böndin og að við vinnum öll saman að sama markmiði með heill og hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi.
Hafnarfjarðarbær er eitt öflugasta sveitarfélag landsins og hér hefur átt sér stað mikil og hröð uppbygging á undanförnum árum. Sú uppbygging hefur treyst og styrkt allar undirstöður í samfélagi okkar og gefið okkur færi á því að efla og bæta almannaþjónustuna. Rekstur bæjarfélagsins hefur eflst á alla lund og við erum vel í stakk búin til að mæta tímabundnum erfiðleikum. Mestu skiptir að við leggjumst nú öll saman á árarnar og stöndum saman í þeim verkum sem bíða okkar.
Við búum við einstakar aðstæður í landgæðum, náttúrauðæfum og mannauði sem gefur okkur sóknarfæri á öllum sviðum til enn frekari uppbyggingar og þróunar í okkar góða sveitarfélagi. Gleymum því ekki að það eru tækifæri á öllum tímum og í öllum kreppum. Það voru til leiðir í fyrri þrengingum og þær eru sannarlega einnig til staðar í dag. Horfum því með bjartsýn til framtíðar. Við höfum allt að vinna í þeim efnum og með því að styðja og styrkja hvert annað byggjum við upp þá samkennd og þann samhug sem við þurfum á að halda.
Lúðvík Geirsson,
bæjarstjóri