Hlutverk verkefnisstjóra Staðardagskrár 21 er að kynna og fylgja eftir hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar og verkefnaáætlun Staðardagskrár fyrir pólitískum fulltrúum, starfsmönnum bæjarins, atvinnulífi og íbúum til þess að þessir aðilar megi hafa hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar að leiðarljósi við stefnumörkun, störf og daglegt líf.
Verkefnisstjóri Staðardagskrár 21 hjá Hafnarfjarðarbæ er Guðjón Ingi Eggertsson. Hann er með B.Sc. gráðu í líffræði og M.Sc. gráðu í umhverfisfræðum, hvoru tveggja frá Háskóla Íslands. Til að hafa samband við Guðjón hringja í síma 585-5500 eða senda tölvupóst á netangið sd21@hafnarfjordur.is.
Hafnarfjörður hóf vinnu við Sd 21 árið 1999. Þá var Sigurborg Hannesdóttir ráðin tímabundið til að undirbúa verkefnið og staðsetja verkefnisstjóra innan stjórnkerfis bæjarins. Að hausti 1999 var Hulda Steingrímsdóttir ráðin til að gegna starfi verkefnisstjóra Staðardagskrár 21 og gengdi hún starfi til loka ágúst 2004. Þá tók við Guðjón Ingi Eggertsson og gegnir hann starfinu nú.