|
|
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Nú er að ljúka stórum áfanga í eflingu dreifikerfis hitaveitunnar í Hafnarfirði. Samhliða samgönguframkvæmdum hefur verið unnið að sverun flutningsæða sem auka munu afhendingaröryggi í suðurhluta bæjarins að miklum mun. Tengivinna kallar á lokun fyrir heitt vatn í hluta bæjarins í hálfan sólarhring nú á laugardaginn, 27. september. Lokað verður fyrir kl. fimm að morgni og kemst heitt vatn á aftur um miðjan dag, gangi tengivinnan að óskum.
Lokun vegna tenginga
Á næstu dögum verður lokið við tengingar nýrra og sverari flutningsæða. Sú vinna tekur um hálfan sólarhring og meðan á henni stendur þarf að loka fyrir Suðuræðina, sem sér syðri hluta Hafnarfjarðar fyrir heitu vatni. Mun lokunin ná til Áslands og Vallanna sunnan Reykjanesbrautar og Kaldárselsvegar og efstu gatna í Setberginu. Þá mun lokunin ná til Hvaleyrarholtsins og Byggða. Nærri lætur að endurbæturnar á dreifkerfinu nái til um helmings Hafnfirðinga. Ein af þremur sundlaugum í bænum – Ásvallalaugin – verður fyrir áhrifum tengivinnunnar.
Hér að neðan er listi yfir þau hverfi, götur eða einstök hús sem lokunin nær til:
Mest uppbygging í Hafnarfirði
Gríðarlega hröð uppbygging hefur verið í syðri hluta Hafnarfjarðar á síðustu árum, sú mesta á Höfuðborgarsvæðinu öllu, ef miðað er við fjölda nýrra heimæða sem Orkuveita Reykjavíkur hefur lagt.
Tvær aðalæðar flytja vatn til Hafnarfjarðar; Hafnarfjarðaræð og Suðuræð svokölluð. Auk þess sem flutningsgeta Suðuræðarinnar hefur verið aukin með sverari lögnum, hafa nýjar dælustöðvar einnig verið teknar í notkun. Kostnaður við verkið á þessu ári nemur um 150 milljónum króna. Á næsta ári verður áfram unnið að styrkingu kerfisins og nemur áætlaður heildarkostnaður Orkuveitu Reykjavíkur við framkvæmdirnar um hálfum milljarði króna. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Fundagerðir |
Útgefið efni |
Gagnlegt - flýtileiðir |
||||||||||
|
|