14. september 2008
| Byggt og búið

Síðast en ekki síst - Vellir 7 eitt glæsilegasta byggingarland Höfuðborgarsvæðisins
Hafnarfjarðarbær auglýsir lausar til umsóknar síðustu lóðirnar á einum fallegasta stað Höfuðborgarsvæðisins.
 
Vellir 7 eru um 30ha að stærð og liggur upp að hlíðinni sunnan og vestan í Ásfjalli. Svæðið er í hlíð sem hallar mót suðri og liggur í skjóli fyrir norðan og austanáttum. Einbýlishús verða staðsett efst í hlíðinni, þar fyrir neðan verða par- og raðhús og fjölbýlishús verða staðsett næst Ásvallabrautinni sem er aðkoman í hverfi ð. Í hverfinu verður 4-6 deilda leikskóli og hjúkrunarheimili.
 
Á Völlum er nú risin 3200 manna byggð og er reiknað með að íbúafjöldi verði um 12.000 þegar svæðið verður fullbyggt. Á svæðinu er m. a. Leik og grunnskóli (Hraunvallaskóli) og glæsileg íþróttaaðstaða að Ásvöllum í Íþróttamiðstöð Hauka og í nýopnaðri sundmiðstöð, Ásvallalaug.
 
 
Lóðunum verður eingöngu úthlutað til einstaklinga. Við úthlutun er haft tilhliðsjónar hvort umsækjandi hafi áður sótt um lóð í bæjarfélaginu og ekki fengið (skv. 9. gr. úthlutunarreglna Hafnarfjarðarbæjar).
 
  
 
Skipulagsgögn og byggingaskilmálar, ásamt umsóknar eyðublaði og úthlutunar reglum, fást afhent í Þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6, og  hér á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar.
 
ATH !  Í umsókn skal tekið fram hvaða lóð er sótt um. Eldri umsóknir þarf að endurnýja.
 
Umsóknum einstaklinga þarf að fylgja staðfesting banka eða lána stofnunar á greiðsluhæfni umsækjenda af 35 milljónum króna.Hver umsókn kostar 1000 kr. sem greiðast þegar umsókn er skilað. Ef greitt er í heimabanka þarf kvittun að fylgja með gögnunum.
 
Umsóknum skal skilað í síðasta lagi 6. október 2008 í Þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar,
Strandgötu 6, 220 Hafnarfirði
 

 Fundagerðir   Útgefið efni   Gagnlegt - flýtileiðir
Þriggja ára áætlun 2009-2011
Fjárhagsáætlun 2007
Ársreikningur 2007
Innkaupastefna
Kortavefurinn
Íbúavefurinn
Sorphirðudagatal
Ýmis eyðublöð

Hafnarfjarðarbær | Kennitala 590169-7579 | hafnarfjordur@hafnarfjordur.is
Ráðhúsi Hafnarfjarðar | Strandgötu 6 | 220 Hafnarfirði | Sími 585 5500 | Bréfsíma 585 5509