Skipulags- og byggingarfulltrúi
13. júlí 2007
Grenndarkynning
Þegar sótt er um byggingarleyfi í þegar byggðu hverfi og deiliskipulag liggur ekki fyrir eða um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi skal skipulags- og byggingarfulltrúi fjalla um málið og láta fara fram grenndarkynningu áður en það hlýtur afgreiðslu. Ef um verulega breytingu á deiliskipulagi er að ræða þá er hún auglýst sem um nýtt deiliskipulag er að ræða. Grenndarkynning felst í því að nágrönnum, sem hagsmuna eiga að gæta er kynnt málið og gefinn kostur á að tjá sig innan ákveðins frests sem skal vera a.m.k. 4 vikur. Að þeim fresti liðnum og þegar niðurstaða liggur fyrir skal skipulags- og byggingarfulltrúi taka málið til afgreiðslu. Þeim sem tjáðu sig um málið skal tilkynnt um niðurstöðuna.