Ein glæsilegasta sundmiðstöð landins opnar í Hafnarfirði á laugardaginn
 
Laugardaginn 6. september kl. 13.00 verður ný og og glæsileg sundmiðstöð, Ásvallalaug, vigð við hátíðlega athöfn.  Í Ásvallalaug er aðstaða til sundiðkunar og afþreyingar með því besta sem völ er á. 50 metra sundlaug, kennslulaug og barnalaug, 6 heitir pottar, eimbað, rennibraut og  leiktæki. Að auki er  í húsinu líkamsræktarstöðin Hress, aðstaða fyrir Sundfélag Hafnarfjarðar, Íþróttafélagið Fjörður, sjúkraþjálfi og veitingaaðstaða.

Björg Snjólfsdóttir forstöðumaður Ásvallalaugar segir allt sé að verða klárt fyrir opnunardaginn og að hún hlakki til að sjá sem flest við opnunina þar sem m.a verða flutt ávörp og tónlistaratriði og laugarnar vígðar.

Opnunarhelgina verður aðgangur ókeypis fyrir alla sundgesti. Ásvallalaug verður opin frá kl.15 til 20 laugardaginn 6. september og frá kl. 8 til 20 sunnudaginn 7. september.
 
 
 
ÓKEYPIS Í SUND – ALLIR VELKOMNIR
 
Ásvallalaug - Heildarstærð byggingar: ˜ 6.000 m2
STÆRRI LAUG
Stærð: 50x25m
Dýpt: 2m
BARNALAUG
Stærð: 16,67x10m
Dýpt: 0,9–1,10m
6 heitir pottar ( 3 úti og 3 inni)

Rennibraut
Eimbað
Veitingaaðstaða
Félagsaðstaða fyrir Sundfélag Hafnarfjarðar
og Íþróttafélagið Fjörð
Hress heilsurækt (˜600 m2)
Ásmegin sjúkraþjálfun

Framkvæmdaraðilar fyrir Hafnarfjarðarbæ:
Hönnun: Batteríið ehf. og Strendingur ehf.
Verktaki: Feðgar
 
Ásvallalaug
Opnunartímar:
Mánudagar – Föstudagar kl. 06–22
Laugardagar og sunnudagar kl. 08-20
 

 Fundagerðir   Útgefið efni   Gagnlegt - flýtileiðir
Áætlanir og ársreikningar
Skólastefna Hafnarfjarðar
Jafnréttisáætlun Hafnarfjarðarbæjar
Menningarstefna Hafnarfjarðar
Ársskýrsla leikskólanna 2005-2006
Strandstígur - Promenade
Götukort
Hafnarfjörður - verið velkomin
Hafnarfjordur - Welcomes you
Hafnarfjordur - (á rússnesku)
Íbúavefurinn
Götukort af Hafnarfirði
Viltu vinna hjá Hafnarfjarðarbæ - laus störf


Hafnarfjarðarbær | Kennitala 590169-7579 | hafnarfjordur@hafnarfjordur.is
Ráðhúsi Hafnarfjarðar | Strandgötu 6 | 220 Hafnarfirði | Sími 585 5500 | Bréfsíma 585 5509