mánudaginn 22. september 2008 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu auk undirritaðra fræðsluráðsmanna:
Fundargerð ritaði: Guðrún Guðmundsdóttir, ritari
Dagskrá:
Almenn erindi
1. 0809197 - Tilkynning um breytingar við framkvæmd samræmdra könnunarprófa
Lagt fram bréf frá menntamálaráðuneytinu þar sem tilkynnt er um breytingar við framkvæmd samræmdra könnunarprófa skv. nýjum lögum um grunnskóla nr. 91/2008.
2. 0809198 - Tilkynning um úttekt á sjálfsmatsaðferðum grunnskóla
Lagt fram bréf frá menntamálaráðuneytinu þar sem tilkynnt er um úttekt á sjálfsmatsaðferðum grunnskóla.
Á þessu hausti eru það Áslandsskóli, Hraunvallaskóli, Hvaleyrarskóli og Víðistaðaskóli sem verða teknir út haustið 2008.
3. 0809064 - Stöðugildi í kennslu við grunnskóla Hafnarfjarðar
Lagt fram yfirlit yfir magn kennsluyfirvinnu og fjölda leiðbeinenda í kennslu samanborið við síðasta skólaár.
4. 0809209 - Vígsla skólamannvirkja
Hamravellir, fimmtudaginn 2. október.
Hraunvallaskóli, föstudaginn 3. október.
Áheyrnarfulltrúar grunnskóla viku af fundi kl. 8:35
5. 0809193 - Beiðni um leyfi fyrir rannsókn
Lagt fram bréf frá Svövu Björgu Mörk, leikskólastjóra þar sem hún óskar eftir leyfi til að framkvæma rannsókn á "Uppbyggingu lærdómssamfélags" í leikskólanum Bjarma.
Fræðsluráð tekur jákvætt í erindið og felur sviðsstjóra afgreiðslu þess.
6. 0809195 - Leikskólinn Álfasteinn - skipulagsdagar
Lagt fram bréf frá skólastjórnendum leikskólans þar sem óskað er eftir að teknir verði þrír samliggjandi skipulagsdagar á vorönn 2009.
Fræðsluráð óskar eftir faglegri umsögn fræðslusviðs og frestar afgreiðslu til næsta fundar.
7. 0809210 - Mat á þörf leikskólarýma
Samkvæmt stefnu fræðsluráðs um bætt þjónustustig hvað varðar inntöku barna á leikskóla Hafnarfjarðar með lækkuðu aldursviðmiði og breyttar forsendur í íbúaþróun felur fræðsluráð fræðslusviði að vinna eða láta vinna mat í þörf leikskólarýma eftir hverfum í Hafnarfirði. Í áföngum verði aldursviðmið lækkuð úr 18 mánaða aldri í 15 mánaða aldur og loks 12 mánaða aldur miðað er við að fæðingarorlof lengist í 12 mánuði á tímabilinu.
Í ljósi þessa leggur formaður fram eftirfarandi tillögu.
“Fræðsluráð felur fræðslusviði að leggja mat á þörf leikskólarýma í Hafnarfirði miðað við íbúaþróun síðustu ára og áætla íbúaþróun næstu ára út frá eftirfarandi forsendum:
-Öll börn 18 mánaða og eldri fái leikskólavist að hausti og börn í forgangshópi frá lokum töku fæðingarorlofs.
-Öll 15 mánaða börn og eldri og börn í forgangshópi frá lokum töku fæðingarorlofs fái leikskólapláss að hausti frá haustinu 2010.
-Öll 12 mánaða börn og eldri og forgangshópar sem ekki njóta 12 mánaða fæðingarorlofs, fái leikskólavist frá haustinu 2012, gengið er út frá því að fæðingarorlof hafi verið lengt í 12 mánuði.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar í samræmi við umræður á fundinum.
Áheyrnarfulltrúar vegna leikskóla viku af fundi kl. 9:00
8. 0809207 - Námsflokkar Hafnarfjarðar haust 2008
Theodór Hallsson skólastjóri Námsflokka Hafnarfjarðar mætti til fundarins og fór yfir námsframboð haustannar.
Fræðsluráð þakkar fyrir greinargóða kynningu á umfangsmiklu og metnaðarfullu starfi sem fram fer í Miðstöð símenntunar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 9:45
Guðni Kjartansson(sign) Hafrún Dóra Júlíusdóttir(sign)
Gestur Svavarsson(sign) Aldís Yngvadóttir(sign)
Helga Ragnheiður Stefánsdóttir(sign)