Fundargerð
Nefnd: Fræðsluráð
Númer: 165
Dags: 8.9.2008
Tími: 08:15
Staður:
Dagskrá

 

Fundargerð fræðsluráðs

 

165. fundur

 

haldinn  á Skólaskrifstofu,

mánudaginn 8. september 2008 og hófst hann kl. 08:15

 

 

Fundinn sátu:

Magnús Baldursson, fræðslustjóri, Vigfús Hallgrímsson, þróunarfulltrúi grunnskóla, áheyrnarfulltrúarnir Helgi Arnarson, fulltrúi skólastjóra grunnskóla, Úlfhildur H. Guðbjartsdóttir fulltrúi grunnskólakennara, Helena Mjöll Jóhannsdóttir, varamaður fulltr. foreldra  grunnsk. barna, Alda Agnes Sveinsdóttir, áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra, Lóa Björk Hallsdóttir, fulltrúi starfsfólks leikskóla og Martha Ricart, fulltrúi foreldra barna á leikskóla

 

Fundargerð ritaði:  Vigfús Hallgrímsson, þróunarfulltrúi grunnskóla

 

Dagskrá:

 

            Almenn erindi

 

1. 0808128 - Hagir og líðan ungs fólks í Hafnarfirði, niðurstöður rannsóknar 2008
Geir Bjarnason, forvarnafulltrúi kynnti stöðu mála í 8., 9. og 10. bekk í Hafnarfirði úr rannsókn sem gerð var í febrúar 2008.

Niðurstöður í heild sýna framfarir en ákveðnir þættir gefa til kynna að þá þurfi að skoða frekar og efla þurfi ákveðna forvarnaþætti til að viðhalda þeim árangri sem hefur áunnist á undanförnum árum.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna lýsa yfir áhyggjum af niðurstöðum sem sýna að hafnfirskar stúlkur stunda skipulagt íþrótta- og tómstundastarf í minnkandi mæli á milli ára. Fræðslu- og íþróttayfirvöld bæjarins eru hvött til að skoða ástæður þessa nánar og finna lausnir til úrbóta.

Fulltrúar Samfylkingar benda á að kannanir sem þessar eru gerðar til að bregðast við þróun mála.

Athugasemd kom frá áheyrnarfulltrúa foreldra, sem jafnframt er formaður forvarnanefndar, um að nefndin sé að vinna í málinu.


2. 0809029 - Grunnskólanemendur í fjarnámi.
Lagt fram bréf frá Maríu Kristínu Gylfadóttur þar sem eru lagðar eru fram spurningar og ábendingar um eflingu samstarfs grunnskóla í Hafnarfirði og Flensborgarskóla vegna grunnskólanemenda sem stunda nám í einstaka námsgreinum í framhaldsskóla, fjarnámi.

Bréf frá Einari Birgi Steinþórssyni skólameistara Flensborgar dagsett 3. september 2008, lagt fram á fundinum þar sem hann bregst við ýmsu í bréfi Maríu Kristínar.

Fræðsluráð vísar málinu til fræðslusviðs til frekari skoðunar..


3. 0809070 - Málstofa -náum betri árangri
Kynnt málstofa Sambands íslenskra sveitarfélaga um skólamál mánudaginn 6. október nk. en fundurinn skarast við hefðbundinn fundatíma fræðsluráðs.

Samþykkt að stefna að stuttum fræðsluráðsfundi að morgni 6. október kl. 8-9 svo að þeir úr ráðinu sem vilja geti sótt málstofuna.

4. 0809064 - Stöðugildi í kennslu við grunnskóla Hafnarfjarðar
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra um stöðugildi í kennslu.

Á næsta fundi verða lagðar fram ítarlegri upplýsingar um stöðugildin þegar þær hafa borist frá skólunum.

5. 0703023 - Öldutúnsskóli - Tillögur starfshópsins / hönnuða
Páll Gunnlaugsson mætti og fór yfir nýja tillögu að deiliskipulagi, m.a. um aðstöðu fyrir nýjan leikskóla.
Lögð fram fundargerð starfshóps um húsnæðisbreytingar Öldutúnsskóla en þar segir í niðurstöðum hópsins: Starfshópurinn fagnar tillögu um færslu Öldugötunnar. Íþróttahúsið lendir þá skólamegin við götuna sem tryggir aukið öryggi nemenda.
Starfshópurinn er sammála um að leikskólinn geti vel rúmast þar sem hann er sýndur á tillögunni án þess að starfsemi hans trufli á nokkurn hátt skólastarf Öldutúnsskóla, eða hamli aðkomu að fyrirhuguðu íþróttahúsi.

Fræðsluráð samþykkir útfærsluna fyrir sitt leyti og vísar málinu til frekari yfirferðar og afgreiðslu framkvæmdaráðs og skipulags- og byggingarráðs.

Áheyrnarfulltrúar grunnskóla véku af fundi.

 

6. 0801403 - Vellir 7, nýr leikskóli
Sigurlaug Sigurjónsdóttir, arkitekt kynnti lokadrög að teikningum nýs leikskóla á Völlum 7.

7. 0808193 - Leikskólar, starfsmannamál 2008-2009
Lögð fram samantekt þróunarfulltrúa leikskóla um stöðugildi og menntunarstig starfsmanna í leikskólum bæjarins haustið 2008.

Fram kemur að 40% starfsmanna eru leikskólamenntaðir og 10% til viðbótar hafa uppeldismenntun á háskólastigi.

Guðni Kjartansson vék af fundi kl. 10.50.

 

8. 0809059 - Móttökuleikskóli
Lögð fram greinargerð þróunarfulltrúa leikskóla varðandi móttökuleikskóla.

Fulltrúi Sjálfstæðisflokks í fræðsluráði óskar eftir eftirfarandi upplýsingum varðandi svonefndan móttökuleikskóla:
- Hver er talin raunveruleg þörf á móttökuleikskóla í Hafnarfirði?
- Hversu mörg börn er um að ræða?
- Hvernig verður aldurssamsetning barnanna?
- Hefur hugur fagfólks í leikskólum til hugmyndarinnar um móttökuleikskóla verið kannaður?
- Hvaðan kemur fyrirmyndin að þessu úrræði?

Áheyrnarfulltrúar leikskóla véku af fundi.

 

9. 0809062 - Tónlistarskólinn - viðbótarhúsnæði
Lagt fram bréf frá stjórnendum Tónlistarskóla Hafnarfjarðar með ósk um viðbótarhúsnæði í Vallarhverfi.  Skólastjóri og aðstoðarskólastjóri Tónlistarskólans mættu til fundarins og gerðu grein fyrir starfsemi skólans.

Fræðsluráð tekur jákvætt í erindið og felur fræðslustjóra að vinna að útfærslu samnings í samstarfi við fjölskyldusvið.

10. 0803132 - Hvammur leikskóli, stækkun

Fulltrúar Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks í fræðsluráði harma það ástand sem nú blasir við í leikskólamálum í Hafnarfirði í kjölfar niðurstöðu úrskurðarnefndar skipulagsmála um að bráðabirgðastækkanir við leikskólana Hvamm og Norðurberg séu óheimilar á grundvelli stöðuleyfa. Skorað er á meirihluta Samfylkingarinnar að vinna úr málinu á grundvelli sátta en jafnframt vekur það furðu að málið skuli ekki tekið upp af hálfu meirihlutans á yfirstandandi fundi fræðsluráðs.
Fulltrúum Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks þykir miður að ekki hafi verið tekið tillit til athugasemda nágranna umræddra leikskóla svo komist hefði verið hjá kærum þeirra. Framgangur málsins ber ekki vott um að meirihluti Samfylkingarinnar hafi raunverulegt íbúalýðræði í Hafnarfirði að leiðarljósi.
Brýnt er að vandað sé til uppbyggingar skólastarfs og grunnþjónustu við íbúa Hafnarfjarðar og ávallt sé tryggt að farið sé að lögum og reglum.

Fulltrúi Vinstri grænna vék af fundi kl. 11.20.

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun: Hér er í fyrsta skipti að falla úrskurður um það að ekki megi koma fyrir viðbótarskólahúsnæði á grundvelli stöðuleyfis. Ekki stendur annað til en að vinna úr málinu á grundvelli sátta og þegar hafa verið og verða haldnir samráðsfundir með íbúum í viðkomandi hverfum. Tímabundnu viðbótarhúsnæði er komið fyrir við viðkomandi skóla til að koma til móts við þarfir foreldra barna í hverfunum fyrir leikskólapláss, en samhliða er verið að vinna að hugmyndum um framtíðarlausn.
Það er rangt að ekki hafi verið tekið tillit til athugasemda nágranna umræddra leikskóla. Athugasemdirnar voru settar fram varðandi umferðaröryggisþætti og unnið hefur verið að lausn á þeim málum, m.a. með aðgengi að nýjum bílastæðum, hraðatakmörkunum og þrengingum gatna.
Hér eftir sem hingað til verður vandað til uppbyggingar skólastarfs og grunnþjónustu við íbúa Hafnarfjarðar og íbúalýðræði haft að leiðarljósi. Ljóst er að þegar um málamiðlun er að ræða mætast aðilar á miðri leið og einnig er vert að hafa í huga að mótmæli viðkomandi íbúa endurspegla ekki skoðanir allra íbúa á svæðunum.

Fulltrúar Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins benda á að nágrannar leikskólanna gerðu snemma í ferlinu athugasemdir sem lutu að því að framkvæmdirnar gætu ekki farið fram á grundvelli stöðuleyfis og vísuðu í 71. gr. byggingareglugerðar þar sem segir m.a.: ,,kveðið er á um leyfisskyldu fyrir staðsetningu hjólhýsa, gáma, báta, torgsöluhúsa og þess háttar lausafjármuna utan skipulagðra svæða til þeirra nota. Er slíkt stöðuleyfi tímabundið, almennt að hámarki til eins árs. Hvers konar byggingar, ofan jarðar og neðan, eru hins vegar háðar byggingarleyfi nema þær séu sérstaklega undanþegnar slíku leyfi, sbr. 36. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og 1. mgr. 43. gr. Laganna’’.
Fulltrúar minnihlutans voru ekki upplýstir um þessar alvarlegu athugasemdir fyrr en þær komust í hámæli í fjölmiðlum og telja að taka hefði átt tillit til þeirra í stað þess að halda ótrauð áfram með framkvæmdir. Þannig hefði verið meiri möguleiki að ná sáttum og komast hjá kærum.

Fulltrúar Samfylkingarinnar óska að bókað sé: Rétt er að vekja athygli á því að fullur samhugur og samstaða var meðal fulltrúa allra flokka um afgreiðslumáta þessa máls í þeim ráðum bæjarins sem málið hefur verið til umfjöllunar í.

Fulltrúi Sjálfstæðisflokks bókar: Fulltrúar minnihlutans voru ekki upplýstir sem skyldi um athugasemdir íbúa og framgang málsins í framkvæmdaferlinu eins og kemur fram í fyrri bókun.

Fulltúar Samfylkingarinnar bóka: Allar athugasemdir fram komnar í málinu liggja fyrir í gögnum bæjarins og eru opnar fulltrúum allra stjórnmálaflokka.

Fulltrúi Sjálfstæðisflokks bókar: Vek athygli á því að þær upplýsingar voru ekki komnar fram á fyrri stigum málsins, sbr. vitneskja um íbúafundi.



Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl.   12.20

 

Ellý Erlingsdóttir(sign)                                      Guðni Kjartansson (sign)

Hafrún Dóra Júlíusdóttir(sign)                         Rósa Guðbjartsdóttir(sign)

Sylvía B. Gústafsdottir (sign)                          

 



Hafnarfjarðarbær | Kennitala 590169-7579 | hafnarfjordur@hafnarfjordur.is
Ráðhúsi Hafnarfjarðar | Strandgötu 6 | 220 Hafnarfirði | Sími 585 5500 | Bréfsími 585 5509