Fundargerð
Nefnd: Íþrótta- og tómstundanefnd
Númer: 83
Dags: 13.10.2008
Tími: 08:15
Staður: Mjósund 10
Dagskrá

Fundinn sátu:

Margrét Gauja Magnúsdóttir, Hörður Þorsteinsson, Sigmundur Friðþjófsson, Elísabet Ólafsdóttir ÍBH ásamt deildarstjóra æskulýðs- og tómstundamála.

 

Fundargerð ritaði:  Anna Kristín Bjarnadóttir

 

 

 

Dagskrá:

 

1.      0803182 - Sumarstarf 2008
Lögð fram til kynningar skýrsla Vinnuskóla Hafnarfjarðar yfir sumarstarf 2008.

Íþrótta- og tómstundanefnd vekur athygli á því í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu, að gera má ráð fyrir mikilli aðsókn í sumarstarfið árið 2009. Gera verður ráð fyrir auknu fjármagni í þennan lið við gerð fjárhagsáætlunar 2009.

2.      0810162 - Verkferlar vegna 3. mgr. 10. gr. æskulýðslaga
Kynntir verkferlar er varða öflunar upplýsinga úr sakaskrá starfsmanna í æskulýðs- og íþróttastarfi, sbr. 3. mgr. 10. gr. æskulýðslaga nr. 70/2007.


3.      0810160 - Knattspyrnudeild FH, styrkbeiðni
Tekið fyrir erindi frá Knattspyrnudeild FH dags. 2. okt. s.l. þar sem óskað er eftir styrk vegna uppskeruhátíðar yngri flokka.

Íþrótta- og tómstundanefnd sér sér ekki fært að verða við erindinu.

4.      0801164 - Ásvellir, nýr salur og stúka
Lögð fram til kynningar fundargerðir starfshóps um uppbyggingu Ásvalla frá 26. ágúst og 3. sept. s.l.


5.      0702004 - Sundmiðstöð á Völlum, framkvæmdir
Lögð fram til kynningar verkfundargerð Ásvallalaugar frá 24. sept. s.l.


6.      0801160 - ÍBH, fundargerðir 2008
Lögð fram til kynningar fundargerð Íþróttabandalags Hafnarfjarðar frá 1. sept. s.l.


7.      0810159 - Handbók fyrir leiðbeinendur í hópastarfi
Erna Sóley Stefánsdóttir forstöðumaður Versins mætti til fundarins og kynnti nýja handbók fyrir leiðbeinendur í hópastarfi sem hún hefur tekið saman.


8.      0810163 - Hjólabrettahátíð Hraunsins 2008
Mikil ánægja er með hjólabrettahátíð sem haldin var við Félagsmiðstöðina Hraunið 2. okt.s.l.. Um 500 börn og unglingar tóku þátt í hátíðinni og fjöldi keppenda voru skráðir til leiks. Keppt var á hjólabrettum, á línuskautum, BMX hjólum og á hlaupahjólum.


Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl.   10:15. Næsti fundur verður 27. okt. n.k.

Margrét Gauja Magnúsdóttir(sign)

 

Hörður Þorsteinsson(sign)

Sigmundur Friðþjófsson(sign)

 

 

 



Hafnarfjarðarbær | Kennitala 590169-7579 | hafnarfjordur@hafnarfjordur.is
Ráðhúsi Hafnarfjarðar | Strandgötu 6 | 220 Hafnarfirði | Sími 585 5500 | Bréfsími 585 5509