|
1. 0703023 - Öldutúnsskóli - Tillögur starfshópsins / hönnuða
Vegna þessa liðar mætti Páll Gunnlaugsson, arkitekt og gerði grein fyrir nýjum hugmyndum að deiliskipulagi vegna viðbyggingar og byggingar íþróttahúss við Öldutúnsskóla.
Fræðsluráð þakkar Páli fyrir kynninguna og telur að kynnt tillaga bjóði upp á aukið öryggi grunnskólabarna í Öldutúnsskóla.
2. 0806091 - Skákfélagið Hrókurinn - styrkbeiðni
Lagt fram bréf dags. 10. júní frá forseta Hróksins þar sem óskað er eftir 100.000 kr. styrk vegna dreifingar bókarinnar Skák og mát eftir Anatoly Karpov til nemenda i 5 árgöngum í grunnskólum Hafnarfjarðar.
Fræðsluráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu ásamt öðrum styrkjum sviðsins.
3. 0705184 - Ásvellir, starfshópur
Vegna þessa liðar mætti Helgi Már Halldórsson frá ASK arkitektum og gerði grein fyrir nýjum íþróttasal við Íþróttamiðstöðina sem fyrirhugað er að byggja.
Fræðsluráð þakkar Helga Má fyrir kynninguna.
4. 0806090 - Samræmd próf 2008
Lagðar fram niðurstöður samræmdra prófa í 10. bekk grunnskóla Hafnarfjarðar vorið 2008.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokks Rósa Guðbjartsdóttir lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:
Hvernig hyggjast fræðsluyfirvöld í Hafnarfirði tryggja að hafnfirskir nemendur í 8. og 9. bekk grunnskóla sem tóku samræmd próf í vor og hefja nám í einstökum námsgreinum á framhaldsskólastigi í haust, þurfi ekki að bera sjálfir kostnað við innritun og námsgögn eins og kveðið er á um í 31. grein laga um grunnskóla?
Fræðsluyfirvöld munu vinna eftir gildandi lögum hverju sinni.
5. 0802001 - Barnaverndarmál, framkvæmdaáætlun
Fundarmenn komi með athugasemdir / ábendingar ef einhverjar eru.
Fulltrúar í fræðsluráði koma ekki með athugasemdir við framkvæmdaáætlun um barnaverndarmál.
6. 0806088 - Menntaþing 2008
Lagt fram bréf, dags. 3.júní 2008 frá menntamálaráðuneytinu þar sem tilkynnt er ákvörðun menntamálaráðherra að halda málþing föstudaginn 12. september nk. vegna nýsamþykktra laga um leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda.
7. 0806093 - Viðurkenningar fræðsluráðs
Formaður gerði grein fyrir viðurkenningum fræðsluráðs árið 2008. Öldutúnsskóli og Norðurberg hlutu viðurkenningar að þessu sinni.
Öldutúnsskóli hlýtur viðurkenningu fyrir verkefnið Rómverjar til forna sem verk- og listgreinakennarar í Öldutúnsskóla hafa þróað og staðið fyrir í skólanum í nokkur ár. Þetta er fjölbreytt verkefni sem reynir á marga þætti sem nemendur þurfa að takast á við til hugar, handar og tjáningar, gefur þeim möguleika á að bæta við eigin reynsluheim og loks að útfæra hugmyndir sínar á skapandi hátt. Þeir kennarar sem hafa verið drifkrafturinn í verkefninu eru Guðný Haraldsdóttir, Guðrún Einarsdóttir, Helga Guðlaug Einarsdóttir, Gunnar Sigurðsson og Kolbrún Kjartansdóttir – í samstarfi við umsjónarkennara 5. bekkja á hverju skólaári.
Leikskólinn Norðurberg hlýtur viðurkenningu fræðsluráðs 2008 fyrir leiðandi starf í umhverfismennt í skólastarfi í Hafnarfirði og frumkvöðlastarf á því sviði. Norðurberg hefur að auki þrisvar sinnum fengið Grænfánann fyrir störf sín að umhverfismálum sem sýnir þann metnað að halda umhverfiskennslu við í skólanum og þróa hana því enginn fær Grænfánann endurtekið nema að sýna stöðugt framfarir og nýjungar í umhverfismennt í daglegu skólastarfi.
Áheyrnarfulltrúar vegna grunnskóla viku af fundi kl. 9:20
8. 0806079 - Leikskóli í Miðbæ / Hvömmum
Formaður lagði fram svohljóðandi tillögu:
Vegna aukinna þarfa á leikskólarýmum í miðbæ og Hvömmum vegna inntöku yngri barna í leikskóla og hugmynda um svokallaðan móttökuleikskóla beinir fræðsluráð því til framkvæmdasviðs að kannaður verði möguleiki á að ná samningum við eigendur Álfaskeiðs 115 um leigu eða kaup á húsinu með það fyrir augum að breyta því í leikskóla og kostnaðarmeti tillöguna. Staðsetning hússins er hentug í grónu hverfi og rými umhverfis það ákjósanlegt til starfsemi af þessu tagi .
Jafnframt því verði skoðaðir möguleikar á áframhaldandi leikskólarekstri á Álfabergi og mögulega stækkun þar.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Rósa Guðbjartsdóttir, vill að fræðsluráði verði gerð grein fyrir raunverulegri þörf á nýju leikskólarými í Hafnarfirði og að slík þarfagreining liggi fyrir sem fyrst. Stofnun nýs leikskóla við Álfaskeið kemur nú skyndilega upp og ekki er gert ráð fyrir leikskólanum á fjárhagsáætlun. Þá er bent á að formaður fræðsluráðs fullyrti á bæjarstjórnarfundi 10. júní sl. að fyrirhuguð stækkun leikskólans Hvamms myndi nægja til að ná þeim markmiðum bæjarfélagsins að koma öllum 18 mánaða börnum að í haust. Tillögur um svokallaða móttökuleikskóla nú eru nýjar og ber að skoða þegar fyrrgreind þarfagreining og kostnaðaráætlun verkefnisins liggur fyrir.
Þá er þess óskað að á næsta fundi fræðsluráðs liggi fyrir yfirlit yfir hvort og þá hve mörg pláss eru nú laus á leikskólanum Stekkjarási.
Fulltrúar Samfylkingar óska bókað:
Eins og fram kemur í tillögunni er um að ræða aukna þörf á leikskólarými vegna inntöku yngri barna, þ.e. yngri barna en 18 mánaða og barna sem flytjast til bæjarins eftir að innritun að hausti lýkur. Farið er fram á, í tillögunni, að möguleikar verði skoðaðir og ekki liggur fyrir að kostnaður leggist á yfirstandandi fjárhagsár. Ef til þess kemur verður beiðni þar að lútandi beint til bæjarráðs.
Þau ummæli formanns fræðsluráðs sem fram komu á fundi bæjarstjórnar 10. júní sl. standa. Fyrirliggjandi tillaga varðar framtíðarsýn og vissulega rétt að tillögur um móttökuleikskóla eru nýjar og framsæknar.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokks óskar bókað:
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins ítekar að hafa aldrei heyrt minnst á að svokallaðir móttökuleikskólar væru í burðarliðnum í Hafnarfirði og í upphaflegri tillögu formanns fræðsluráðs og fundarboði var hvergi minnst á fyrirbærið móttökuleikskóli. Að mati fulltrúa Sjálfstæðisflokksins væri eðlilegra að slík nýjung væri rædd efnislega í ráðinu ekki síst með nýjustu þarfagreiningu að leiðarljósi, áður en farið er að huga að kaupum á húsnæði undir slíka starfsemi.
Fulltrúar Samfylkingar óska bókað:
Hugmyndin um móttökuleikskóla kom hér fram af hálfu Samfylkingarinnar og hafa verið ræddar á fræðslusviði og verða þróaðar áfram á vettvangi fræðslusráðs og sviðsins.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokks óskar bókað:
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins stendur fast við þá skoðun sína að nýja kostnaðarsama þjónustu sem þessa hefði átt að ræða ítarlega fyrst í fræðsluráði áður en hugsanleg fasteignakaup eru lögð til. Þetta er sérstaklega mikilvægt þar sem um afar viðkvæma og þýðingarmikla þjónustu er að ræða, þe. umönnun og uppeldi yngstu barnanna í bæjarfélaginu.
Fulltrúar Samfylkingar óska bókað:
Umönnun og uppeldi yngstu barnanna í bæjarfélaginu eru að sönnu þýðingarmikil þjónusta enda hér sett fram framsækin tillaga til að bæta enn frekar þá góðu þjónustu sem veitt er í bænum.
Tillagan samþykkt með fjórum atkvæðum. Fulltrúi Sjálfstæðisflokks situr hjá.
9. 0708149 - Smáralundur, framkvæmdir.
Vegna þessa liðar mætti Jón Þór Þorvaldsson arkitekt frá arkitektastofunni Úti og inni og kynnti hugmyndir að stækkun leikskólans.
Fræðsluráð þakkar Jóni Þór fyrir kynninguna og tekur jákvætt í fram komnar hugmyndir og beinir því til framkvæmdasviðs að unnið verði að áframhaldandi framgangi málsins.
Áheyrnarfulltrúar vegna leikskóla viku af fundi kl. 10:00
10. 0806089 - Tónlistarskóli - reglugerð
Lagt fram bréf frá menntamálaráðuneytinu þar sem kallað er eftir reglugerð um Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.
Jafnframt lögð fram drög að reglugerð fyrir skólann.
Bæjarlögmaður hefur lesið drögin yfir og gerir ekki athugasemd.
Fræðsluráð samþykkir framlögð drög að reglugerð og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.
|