23. október 2008
| Fjölskyldan

Bleikur morgun í þjónustuveri bæjarins

Starfsfólk  í þjónustuveri Hafnarfjarðabæjar bauð í morgun samstarfsfólki sínu  í kaffi og  Möffins í tilefni af því að  októbermánuður er tileinkaður bleikum slaufum til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini.

Starfsfólkið klæddist bleiku og báru bleiku slaufuna. Anna Bára Gunnarsdóttir, deildarstjóri í þjónustuverinu sagði að þeim hefði langað til að vekja athygli á bleiku slaufunni með einhverjum hætti og leggja um leið eitthvað  af mörkum til „okkar“ kvenna.

" Um leið langaði okkur líka til að gleðja samstarfsfólk okkar og bjóða því til okkar í möffinsveislu. Fjölmargir kíktu á okkur og var ekki annað að heyra en menn hefðu verið ánægðir með framtakið, bæði að vekja athygli á bleiku slaufunni og ekki síður að vera boðið í kökur. " segir Anna Bára og þakkar um leið öllum sem lögðu leið sína í þjónustuverið fyrir komuna.

 



 Fundagerðir   Útgefið efni   Gagnlegt - flýtileiðir

Skólastefna Hafnarfjarðar ( 3 Mb )
Skólavefritið
Upphaf grunnskólagöngu - 6 ára bæklingur
Ársskýrsla leikskóla ( 5 Mb )
Eyðublöð/Umsóknir
Sækja um leikskóla
Félög og forsvarsmenn þeirra


Hafnarfjarðarbær | Kennitala 590169-7579 | hafnarfjordur@hafnarfjordur.is
Ráðhúsi Hafnarfjarðar | Strandgötu 6 | 220 Hafnarfirði | Sími 585 5500 | Bréfsíma 585 5509