Óskum eftir hressum og áhugasömum starfsmönnum í dagþjónustu hjá Félagsþjónustunni í Hafnarfirði. Helstu verkefni eru að aðstoða þjónustuþega við athafnir daglegs lífs, auka færni þeirra og sjálfstæði. Við bjóðum starfsmönnum fjölbreytni í starfi, fræðslu og handleiðslu og öruggt starfsumhverfi, Í boði er sveigjanlegur starfstími og starfshlutföll eru samkomulagsatriði.
Starfið gerir kröfu um jákvætt viðmót og góðra hæfileika til mannlegra samskipta. Sjálfstæði og frumkvæði í starfi eru miklir kostir
Við leitum að einstaklingum með félagsliðamenntun eða aðra félagslega menntun, reynslu eða mikinn áhuga á störfunum.
Laun fara eftir kjarasamningi Hafnarfjarðarbæjar og Verkalýðsfélagsins Hlífar.
Upplýsingar um starfið veitir Sjöfn Guðmundsdóttir fulltrúi heimaþjónustudeild.
Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á
sjofng@hafnarfjordur.is