Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar er sviðsskrifstofa fræðslusviðs. Skólaskrifstofan fer með Yfirstjórn leik- og grunnskólamálefna hjá Hafnarfjarðarbæ auk þess að annast málefni tónlistaskóla og fullorðinsfræðslu (námsflokkar). Skólaskrifstofan er til húsa að Strandgötu 31 og er afgreiðsla á 3. hæð. Sími skrifstofunnar er 585 5800, bréfsími 585 5809 og netfang hennar er skolaskr@hafnarfjordur.is.
Yfir Skólaskrifstofunni er Magnús Baldursson, magnusb@hafnarfjordur.is, sem jafnframt er sviðsstjóri fræðslusviðs Hafnarfjarðarbæjar og þá um leið fræðslustjóri i Hafnarfirði.
Yfir daglegum rekstri skrifstofunnar er skrifstofustjóri, Ingibjörg Einarsdóttir, sem hefur netfangið ingibje@hafnarfjordur.is. Skólaskrifstofan er opin daglega frá kl. 8-16.
Á Skólaskrifstofunni er m.a. eftirfarandi þjónusta fyrir foreldra grunnskólanemenda, nemendur og starfsfólk skóla:
Frá árinu 2008 gefur Skólaskrifstofan út starfsáætlun með stefnu fræðslusviðs
og forgangsverkefni auk almennra tölulegra upplýsinga um framkvæmd skólastarfs í Hafnarfirði. Starfsáætlanirnar er hægt að nálgast hér á pdf-sniði:
SKÓLASKRIFSTOFA HAFNARFJARÐAR
Yfirstjórn skólamála í Hafnarfirði er í höndum Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar sem er til húsa að Strandgötu 31, sími 585 5800. Netfang: skolaskr@hafnarfjordur.is. Fræðslustjóri er Magnús Baldursson (magnusb@hafnarfjordur.is) sem jafnframt er sviðsstjóri fræðslusviðs Hafnarfjarðarbæjar.
Fyrir Hafnarfjarðarbæ er í gildi skólastefna sem tók gildi árið 2005. Hér má nálgast hana:
Skólastefna Hafnarfjarðar(2005).
Hafnarfjarðarbær rekur 15 leikskóla auk þess er starfræktir eru 3 leikskólar á þjónustusamningi við Hafnarfjarðarbæ. Börn á leikskólum eru nálægt 1500.
Leikskólar bæjarins eru opnir alla virka daga frá klukkan 07.30 til 17.30. Í leikskólum fá börnin morgunverð, hádegisverð og síðdegishressingu. Leikskólarnir eru Arnarberg, Álfaberg, Álfasteinn, Hjalli, Hlíðarberg, Hlíðarendi, Hraunvallaskóli, Hvammur, Hörðuvellir, Kató, Norðurberg, Smáralundur, Tjarnarás, Vesturkot, Víðivellir, Stekkjarás.
Grunnskólar Hafnarfjarðar eru átta haustinu 2006 og eru fyrir nemendur á aldrinum 6-16 ára. Nemendur í grunnskólum Hafnarfjarðar eru rúmlega 3700 og starfsmenn skólanna eru um 580 (hlutastörf meðtalin) og þar af eru kennarar um 350.
Grunnskólar Hafnarfjarðar eru Áslandsskóli, Engidalsskóli, Hraunvallaskóli, Hvaleyrarskóli, Lækjarskóli, Setbergsskóli, Víðistaðaskóli og Öldutúnsskóli.
Hafnarfjarðarbær rekur eigin tónlistarskóla sem heitir Tónlistarskóli Hafnarfjarðar. Hann tók til starfa árið 1997 í nýju húsnæði við Strandgötu. Heimasíða Tónlistarskólans.
Hafnarfjarðarbær rekur eigin fullorðinsfræðslu/námsflokka sem nefnist Miðstöð símenntunar - Námsflokkar Hafnarfjarðar. Miðstöð símenntunar er staðsett í Menntasetrinu við Lækinn. Heimasíða Miðstöðvar símenntunar.
PMT-foreldrafærni er verkefni á fræðslusviði Hafnarfjarðar. Heimasíða PMT-foreldrafærni.
Fundagerðir |
Útgefið efni |
Gagnlegt - flýtileiðir |
|||||||||
|
|