Leikskólar í Hafnarfirði eru fyrir öll börn á aldrinum 2-6 ára með lögheimili í bænum, eða frá hausti (september) það ár sem barn verður tveggja ára en einnig er farið að bjóða yngri börnum leikskóladvöl. Hægt er að sækja um leikskóladvöl hvenær sem er frá fæðingu barns. Sjá nánar um gjaldskrá leikskóla hér og greiðslureglur leikskóla hér.
Leikskólarýmum er úthlutað eftir aldri barns. Þó getur val foreldra um dvalartíma og leikskóla eftir hverfi ráðið nokkru sömuleiðis. Börn einstæðra foreldra, börn námsmanna, börn sem búa við fötlun/veikindi og börn sem búa við félagslega erfiðleika ganga fyrir um leikskóladvöl.
Uppsagnarfrestur er á leikskóladvöl, gagnkvæmur, og er hann einn mánuður. Uppsagnarfrestur miðast við 1. og 15. hvers mánaðar.
Barn sem flutt er í Hafnarfjörð úr öðru sveitarfélagi á höfuðborgarsvæðinu getur dvalið í allt að sex mánuði í leikskóla í því sveitarfélagi sem það bjó í áður. Það er án aukakostnaðar samkvæmt sérstöku samkomulagi sem sveitarfélögin hafa gert sín á milli. Í einstaka tilvikum er veitt undanþágu frá þessu ef sérstakar þarfir knýja þar á, þ.e. dvölin er ekki bundin við sex mánuði. Um slíkt þarf að sækja um sérstaklega. Sótt er um dvölina til þess sveitarfélags sem barnið bjó í/hefur flutt úr. Foreldrar sem eiga börn leikskólum Hafnarfjarðar og flytja í annað sveitarfélag er skylt að tilkynna það strax til viðkomandi leikskóla.
Hér er hægt að sækja um leikskóladvöl rafrænt í gegnum Íbúagátt Hafnarfjarðarbæjar, einnig er hægt að fylla út rafrænt umsóknareyðublað í tölvu í Þjónustuveri eða á Skólaskrifstofu. Umsóknareyðublað á pappír má nálgast í Þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6, sími 585 5800 eða á Skólaskrifstofunni. Umsókninni skal skilað á Skólaskrifstofuna.
Hér er hægt að sækja umsóknareyðublað (WORD-snið; PDF-snið) um leikskóladvöl hjá Hafnarfjarðarbæ. Umsóknareyðublöð á erlendum tungumálum er hægt að sækja hér sömuleiðis: Mikilvægt er að fylla umsóknareyðublaðið vel út, rétt og nákvæmlega því ónógar upplýsingar geta tafið umsóknarferlið og kostað meiri fyrirhöfn fyrir alla aðila. Ef barn er nýflutt úr öðru sveitarfélagi þarf að fylgja vottorð um lögheimili í Hafnarfirði með leikskólaumsókninni.
Umsóknareyðublöð um leikskóladvöl er einnig til á erlendum tungumálum sem nálgast hér neðar (choose between Word-processor file or Acrobat Reader file in every language and choose Word file if you have both possibilities available):
/Application for playschool (Word - PDF).
/Chinese (Word - PDF).
/Wniosek o pobyt w przedszkolu (Word - PDF).
/Russian (Word - PDF).
/Prijava za boravak u decjem vrticu (Word - PDF).
/Thai (Word - PDF)Þegar barn hefur fengið leikskóladvöl er gerður samningur við foreldra um dvölina. Hér er hægt að nálgast þann samning (Word - PDF). Dvalarsamningurinn er einnig til á eftirfarandi tungumálum og má nálgast þá hér:
LEIKSKÓLAR HAFNARFJARÐAR
Hafnarfjarðarbær rekur 15 leikskóla auk þess eru starfræktir þrír leikskólar samkvæmt þjónustusamningi.
Leikskólar bæjarins eru opnir alla virka daga frá klukkan 07.30 til 17.30. Í leikskólum fá börnin morgunverð, hádegisverð og síðdegishressingu. Leikskólarnir eru
Yfirstjórn leikskóla er í höndum Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar sem er til húsa að Strandgötu 31, sími 585 5800. Netfang: skolaskr@hafnarfjordur.is. Fræðslustjóri er Magnús Baldursson (magnusb@hafnarfjordur.is) sem jafnframt er sviðsstjóri fræðslusviðs Hafnarfjarðarbæjar.
Fyrir Hafnarfjarðarbæ er í gildi skólastefna sem tók gildi árið 2005. Hér má nálgast hana: Skólastefna Hafnarfjarðar (2005).
Ýmislegt útgefið efni fræðslusviðs, s.s. eyðublöð ýmis konar, er að finna hér.
Hér er hægt að sækja um leikskóladvöl rafrænt í gegnum Íbúagátt Hafnarfjarðarbæjar, einnig er hægt að fylla út rafrænt umsóknareyðublað í tölvu í Þjónustuveri eða á Skólaskrifstofu. Umsóknareyðublað á pappír má nálgast í Þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6, sími 585 5800 eða á Skólaskrifstofunni. Umsókninni skal skilað á Skólaskrifstofuna.
Hér er hægt að sækja umsóknareyðublað (WORD-snið; PDF-snið) um leikskóladvöl hjá Hafnarfjarðarbæ. Umsóknareyðublöð á erlendum tungumálum er hægt að sækja hér sömuleiðis:
/Application for playschool (Word - PDF).
/Chinese (Word - PDF).
/Wniosek o pobyt w przedszkolu (Word - PDF).
/Russian (Word - PDF).
/Prijava za boravak u decjem vrticu (Word - PDF).
/Thai (Word - PDF)Þegar barn hefur fengið leikskóladvöl er gerður samningur við foreldra um dvölina. Hér er hægt að nálgast þann samning (Word - PDF). Samningurinn er einnig til á eftirfarandi tungumálum og má nálgast þá hér sömuleiðis:
Fundagerðir |
Útgefið efni |
Gagnlegt - flýtileiðir |
|||||||||
|
|