Stóra upplestrarkeppnin

Stóra upplestrarkeppnin er þróunarverkefni sem hófst við grunnskóla Hafnarfjarðar og á Álftanesi árið 1996 en er nú árlegt verkefni sem nær til alls landsins eða til um 140 skóla á landinu. Markmið Stóru upplestrarkeppninnar er að þjálfa nemendur í vönduðum flutningi og framburði íslensks máls.

Keppnin fer fram á eftirfarandi hátt: Sérhver skóli sem vill taka þátt í keppninni skráir sig í keppnina og gerist það strax að hausti, oftast nær i september. Þann 16. nóvember ár hvert, á degi íslenskrar tungu, er keppnin formlega sett. Þá leggja kennarar í 7. bekkjum sérstaka rækt við vandaðan upplestur og framsögn í bekkjum. Að lokinni þjálfun er haldin bekkjarhátíð þar sem nemendur lesa upp frásögur og ljóð fyrir samnemendur og foreldra. Tveir nemendur eru þá valdir sem fulltrúar skólans til að lesa á lokahátíð. Í Hafnarfirði er lokahátíðin haldin í Hafnarborg í mars ár hvert. Á lokahátíð er lögð mikil áhersla á hátíðlega athöfn með upplestri og tónlistaratriðum. Allir lesarar á lokahátíð fá bókaverðlaun og þrír fremstu fá að auki sérstaka viðurkenningu. Allir bæjarbúar eru boðnir velkomnir á lokahátíðina.

Framkvæmd Stóru upplestrarkeppninnar er í höndum sérstaks félagsskapar, Radda, samtaka um vandaðan upplestur og framsögn. Í hverju byggðarlagi er skipaður sérstakur umsjónarmaður með verkefninu og í Hafnarfirði er það Ingibjörg Einarsdóttir, íslenskufræðingur og skrifstofustjóri á Skólaskrifstofunni. Að auki skipar hver skóli einn umsjónarmann keppninnar í sínum skóla. Raddir standa þá fyrir námskeiðum og fræðslu fyrir kennara um framsögn og framburðarkennslu eftir óskum. Þá gefa Raddir út kennsluefni og leiðbeiningar fyrir kennara og skóla um framsögn og upplestur.

Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar er sérstakur styrktaraðili Stóru upplestrarkeppninnar auk fleiri aðila.

Stóra upplestrarkeppnin heldur úti eigin vef og er hægt að komast á hann með því að smella hér.

Ljósmynd: Lesendur á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Hafnarborg í mars 2005 ásamt fulltrúum skólanna sem áttu lesara í þremur fyrstu sætunum.

 

 

GRUNNSKÓLAR HAFNARFJARÐAR


Grunnskólar í Hafnarfirð eru niu frá hausti 2007, átta starfræktir á vegum Hafnarfjarðarbæjar og einn einkarekinn  sem eru fyrir nemendur á aldrinum 6-16 ára. Nemendur í grunnskólum Hafnarfjarðar eru um 3800 og starfsmenn skólanna eru nálægt 600 (hlutastörf meðtalin) og þar af eru kennarar um 350.

Grunnskólar í Hafnarfirði eru:  

Yfirstjórn grunnskóla er í höndum Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar sem er til húsa að Strandgötu 31, sími 585 5800. Netfang: skolaskr@hafnarfjordur.is. Fræðslustjóri er Magnús Baldursson (magnusb@hafnarfjordur.is) sem jafnframt er sviðsstjóri fræðslusviðs Hafnarfjarðarbæjar.

Fyrir Hafnarfjarðarbæ er í gildi skólastefna sem tók gildi árið 2005. Hér má nálgast hana: Skólastefna Hafnarfjarðar (2005).

Ýmislegt útgefið efni fræðslusviðs, s.s. eyðublöð ýmis konar, er að finna hér.


 



 Fundagerðir   Útgefið efni   Gagnlegt - flýtileiðir
Skólastefna Hafnarfjarðar ( 3 Mb )
Skólavefritið
Upphaf grunnskólagöngu - 6 ára bæklingur
Ársskýrsla leikskóla ( 5 Mb )
Eyðublöð/Umsóknir
Sækja um leikskóla
Félög og forsvarsmenn þeirra


Hafnarfjarðarbær | Kennitala 590169-7579 | hafnarfjordur@hafnarfjordur.is
Ráðhúsi Hafnarfjarðar | Strandgötu 6 | 220 Hafnarfirði | Sími 585 5500 | Bréfsíma 585 5509