Í hverju skólaumdæmi er skylt að veita nemendum sem þurfa á stuðningi (sálfræðilegum, námslegum) að halda upp á sérfræðiþjónustu og er Hafnarfjörður eitt slíkra umdæma. Sérfræðiþjónustunni er ætlað að stuðla að því að sálfræðileg og kennslufræðileg þekking nýstist sem best í skólastarfi. Sérfræðiþjónustan starfar eftir reglugerð menntamálaráðuneytis (Reglugerð nr. 386/1996) og síðari breytingum við hana (Reglugerð nr. 905/2003). Þjónustan getur verið mismunandi og ræðst af aðstæðum nemenda og skóla. Til hægðarauka hér er sérfræðiþjónustunni í Hafnarfirði skipt upp í nokkra þætti og kynnt hér örlítið nánar. Frekari upplýsingar um sérfræðiþjónustuna er að fá hjá hverjum skóla.
Námsráðgjöf:
Í öllum grunnskólum Hafnarfjarðar eru stöður námsráðgjafa. Til þeirra geta kennarar, nemendur og foreldrar leitað eftir ráðum og úrlausnum vegna náms og starfsvals, forvarna og fyrirbyggjandi starfs auk persónulegra málefna einstakra nemenda.
Þessir aðilar starfa við námsráðgjöf við grunnskóla Hafnarfjarðar:
Sálfræðiþjónusta:
Skólasálfræðingur starfar í hverjum grunnskóla bæjarins og hefur aðsetur þar. Sálfræðiaðstoð stendur nemendum til boða og þar með foreldum og kennurum þeirra. Aðstoðin getur verið af ýmsu tagi, s.s. greiningar vegna hegðunar- og námserfiðleika (ofvirkni, lestrarvandi o.fl.) og ráðgjöf. Beiðni til sálfræðings er gerð í skóla í samvinnu við foreldra/forráðamenn og er háð samþykki þeirra.
Heimsóknir nemenda til sálfræðings eru háðar leyfi foreldra. Hver sálfræðingur hefur ákveðna viðveru í hverjum skóla og er hægt að fá þær upplýsingar hjá hverjum skóla fyrir sig. Yfirsálfræðingur grunnskóla er Eiríkur Þorvarðarson (eirikurth@hafnarfjordur.is) á Skólaskrifstofunni.
Eftirfarandi sálfræðingar starfa við grunnskóla Hafnarfjarðar:
Talmeinaþjónusta:
Við grunnskóla Hafnarfjarðar er þjónusta við nemendur sem eiga við heyrnar- og talvandamál að stríða, í daglegu tali nefnd talmeinaþjónusa. Talmeinaþjónustan er aðkeypt frá nokkrum aðilum, m.a. Mál og tal talmeinaþjónustu eða Talstofunni og fer þjónustan fram fyrir milligöngu grunnskólanna sjálfra og Skólaskrifstofunnar. Í meginatriðum skiptist þjónustan milli þessara aðila eftir skólum:
Sérkennsla:
Við alla grunnskólana í Hafnarfirði er nemendum veittur viðbótarstuðningur í námi, ef hefðbundin bekkjarkennsla dugir ekki til og aðstæður leyfa, sem einu nafni er nefnd sérkennsla. Slíkur stuðningur getur verið margs konar, verið mismunandi eftir árgöngum og staðið mislengi yfir hjá hverjum nemanda eða allt frá 1-2 mánuðum til allrar grunnskólagöngunnar. Umsýsla á Skólaskrifstofu vegna sérkennslu og tengiliður við foreldra barna í sérkennslu í grunnskólum Hafnarfjarðar er Helgi Gíslason (helgigisla@hafnarfjordur.is) sérkennsluráðgjafi grunnskóla.
Deildarstjórar/fagstjórar í sérkennslu í grunnskólunum eru:
Sérdeildir:
Í sumum tilfellum duga ekki hefðbundin sérkennsluúrræði í skólum og þá er boðið upp á sérstök úrræði eða sérdeildir hjá Hafnarfjarðarbæ. Sérdeildirnar vinna eftir starfsskrá og viðhafa ákveðnar inntökureglur með sérstakra inntökunefnd sem í sitja viðkomandi skólastjóri, forstöðumaður deildar og ráðgjafar- og þróunarfulltrúi á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar. Meginreglan er sú að nemendur eru teknir inn í sérdeild einu sinni á ári, þ.e. fyrir hvert skólaár og umsókn um dvöl í sérdeild sé skilað inn tímanlega að vori (fyrir 1. apríl). Eyðublað fyrir inngöngu í sérdeildir er hægt að nálgast þau íð grunnskólunum eða á Skólaskrifstofunni. Umsýsla á Skólaskrifstofu vegna sérkennslu og tengiliður við foreldra barna í sérkennslu í grunnskólum Hafnarfjarðar er Helgi Gíslason (helgigisla@hafnarfjordur.is), sérkennsluráðgjafi grunnskóla.
Sérdeildir í Hafnarfirði eru:
Nemendum í Hafnarfirði sem stunda nám í sérdeild utan þeirra skólahverfis er ekið í og úr skóla. Sömuleiðis getur verið að nemendum í Hafnarfirði sé útvegað pláss í sérskóla utan bæjarfélagsins ef ekki er mögulegt að mæta þörfum nemanda í sérdeildum Hafnarfjarðarbæjar. Óskir um slíkt er metnar sjálfstætt á vegum Skólaskrifstofunnar og í samræmi við þarfir og það fjármagn sem er til úthlutunar til sérfræðiþjónustu á hverjum tíma.
Móttökudeild nýbúa:
Hafnarfjarðarbær rekur móttökudeild fyrir nýbúa sem ekki getað stundað nám í bekk sökum ónógrar íslenskukunnáttu auk þess sem deildin fylgir eftir þeim nemendum sem útskrifast úr deildinni og fara í almennar bekkjardeildir. Deildin er starfrækt í Lækjarskóla. Frá hausti 2007 fara nýbúanemendur í 1.-3. bekk grunnskóla beint í sinn hverfisskóla. Deildarstjóri er Kristrún Sigurjónsdóttir, (kiddy@laekjarskoli.is). Umsýsla á Skólaskrifstofu vegna nýbúafræðslu og tengiliður við foreldra nýbúabarna í grunnskólum Hafnarfjarðar er Helgi Gíslason (helgigisla@hafnarfjordur.is), sérkennsluráðgjafi grunnskóla.
Allir starfsmenn sérfræðiþjónustu lúta verksstjórn skólastjóra viðkomandi grunnskóla.
Yfirumsjón sérfræðiþjónustu:
Yfirumsjón sérfræðiþjónustu er á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar. Helstu verkefni þar eru: úthlutun sérkennslumagns, eftirlit, þróun og eftirfylgni sérfræðiþjónustu, umsjón og ráðgjöf með sérdeildum, nýbúadeild og fjölgreinadeild, skipulagning sálfræði- og talmeinaþjónustu, samskipti við félagsþjónustu og heilsugæslu, ráðgjöf til foreldra og úrlausn erinda til sálfræðiþjónustunnar.
Upplýsingar um sérfræðiþjónustu fyrri skólaára:
GRUNNSKÓLAR HAFNARFJARÐAR
Grunnskólar í Hafnarfirð eru niu frá hausti 2007, átta starfræktir á vegum Hafnarfjarðarbæjar og einn einkarekinn sem eru fyrir nemendur á aldrinum 6-16 ára. Nemendur í grunnskólum Hafnarfjarðar eru um 3800 og starfsmenn skólanna eru nálægt 600 (hlutastörf meðtalin) og þar af eru kennarar um 350.
Grunnskólar í Hafnarfirði eru:
Yfirstjórn grunnskóla er í höndum Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar sem er til húsa að Strandgötu 31, sími 585 5800. Netfang: skolaskr@hafnarfjordur.is. Fræðslustjóri er Magnús Baldursson (magnusb@hafnarfjordur.is) sem jafnframt er sviðsstjóri fræðslusviðs Hafnarfjarðarbæjar.
Fyrir Hafnarfjarðarbæ er í gildi skólastefna sem tók gildi árið 2005. Hér má nálgast hana: Skólastefna Hafnarfjarðar (2005).
Ýmislegt útgefið efni fræðslusviðs, s.s. eyðublöð ýmis konar, er að finna hér.
Fundagerðir |
Útgefið efni |
Gagnlegt - flýtileiðir |
|||||||||
|
|