Fræðslusvið Hafnarfjarðar hefur tekið upp verkefnið Hugur og heilsa, forvörn gegn þunglyndi, fyrir 9. bekkinga í grunnskólum.
Fræðsluráð Hafnarfjarðar ákvað vorið 2006 að nemendum í 9. bekk í öllum grunnskólum Hafnarfjarðar skólaárið 2006 – 2007 yrði boðið að taka þátt í forvarnarverkefni gegn þunglyndi sem dr. Eiríkur Örn Arnarson, sálfræðingur stýrir. Verkefnið fer fram í samráði og samvinnu við Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar og grunnskóla Hafnarfjarðar.
Forvarnarverkefnið Hugur og heilsa: forvörn gegn þunglyndi er íslenskt sprotaverkefni sem hlotið hefur hagnýtingarverðlaun HÍ. Það er fyrsta slíka verkefnið á heimsvísu. Verkefnið hefur verið rannsakað kerfisbundið í 9. bekk grunnskóla í 6 sveitarfélögum á landinu frá 2001 og nemum fylgt eftir í eitt ár eftir að verkefni lauk. Tilurð og framkvæmd verkefnisins er sú reynsla að hagkvæmasta leiðin í forvörnum þunglyndis sé að ná til þeirra unglinga sem líklegir eru til að þróa einkenni þunglyndis áður en það verður alvarlegur vandi og fyrirbyggja það. Niðurstöður hafa leitt í ljós að þeir nemendur sem hafa setið námskeiðið þróa síður með sér þunglyndi eða óyndi.
Hafnarfjörður er fyrsta bæjarfélagið til að útfæra þetta forvarnarverkefni á markvissan hátt í heilum árgangi, eftir að rannsóknarstigi er lokið. Markmiðið er að verkefnið skili góðum árangri sem forvörn gegn þunglyndi eða óyndi og verði að árlegu verkefni fyrir 9. bekkinga.
Framkvæmd verkefnisins gerist í þremur áföngum. Fyrsti áfanginn felur í sér skimun nemenda í 9. bekk allra grunnskóla í Hafnarfirði. Skimunin gerist í byrjun skólaárs. Búast má við að um það bil 50 – 100 ungmenni þurfi frekari greiningu að skimun lokinni þegar um 350 nemendur eru í árgangi líkt og í Hafnarfirði. Greiningar munu fara fram í viðtölum hjá sálfræðingum sem munu kynna niðurstöður þeirra fyrir ungmennum og foreldrum. Þetta ferli er foreldrum og nemendum að kostnaðarlausu. Þriðji áfangi verkefnis gerist á vormisseri. Þá er þeim nemendum sem uppfylla ákveðin viðmið boðin þátttaka í forvarnarnámskeiði gegn þunglyndi. Námskeiðið stendur í 12 vikur og er 14 kennslutímar. Foreldrar munu taka þátt í kostnaði af námskeiðinu, en Hafnarfjarðarbær mun greiða niður þátttöku hvers ungmennis allt að helmingi kostnaðar.
Foreldrum nemenda í 9. bekk í grunnskólum Hafnarfjarðar er sent bréf þar sem verkefnið er kynnt áður en það hefst og börnum þeirra boðin þátttaka. Foreldrar eru beðnir um að gefa skriflegt samþykki fyrir þátttöku barna sinna í skimuninni og koma til skóla barnsins.
Umsjón með verkefninu fyrir hönd Hafnarfjarðar er í höndum Skólaskrifstofunnar.
GRUNNSKÓLAR HAFNARFJARÐAR
Grunnskólar í Hafnarfirð eru niu frá hausti 2007, átta starfræktir á vegum Hafnarfjarðarbæjar og einn einkarekinn sem eru fyrir nemendur á aldrinum 6-16 ára. Nemendur í grunnskólum Hafnarfjarðar eru um 3800 og starfsmenn skólanna eru nálægt 600 (hlutastörf meðtalin) og þar af eru kennarar um 350.
Grunnskólar í Hafnarfirði eru:
Yfirstjórn grunnskóla er í höndum Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar sem er til húsa að Strandgötu 31, sími 585 5800. Netfang: skolaskr@hafnarfjordur.is. Fræðslustjóri er Magnús Baldursson (magnusb@hafnarfjordur.is) sem jafnframt er sviðsstjóri fræðslusviðs Hafnarfjarðarbæjar.
Fyrir Hafnarfjarðarbæ er í gildi skólastefna sem tók gildi árið 2005. Hér má nálgast hana: Skólastefna Hafnarfjarðar 2005).
Ýmislegt útgefið efni fræðslusviðs, s.s. eyðublöð ýmis konar, er að finna hér.
Fundagerðir |
Útgefið efni |
Gagnlegt - flýtileiðir |
|||||||||
|
|