Heilsdagsskóli er viðvera fyrir nemendur í grunnskóla, sem eru í 1. – 4. bekk, á dagvinnutíma utan þess tíma sem nemendur sækja kennslustundir samkvæmt stundaskrá sinni. Oftast nær er það tíminn eftir kl. 13 og fram til kl. 17. Örlítill munur er þó eftir aðstæðum í hverjum grunnskóla. Heilsdagsskólinn er opinn alla kennsludaga og líka þá daga sem kennsla er óhefðbundin og er þá jafnvel opinn allan dagvinnutímann, t.d. foreldraviðtalsdaga. Heilsdagsskólinn starfar ekki yfir sumartímann.
Lágmarksverð fyrir dvöl í heilsdagsskóla er kr. 3.860 á mánuði fyrir barn (frá 1. janúar 2008). Í því felst að keypt er dvöl fyrir allt að 20 klst. á mánuði eða að jafnaði 1 klst. á dag. Fyrir lengri dvöl greiðist kr. 193 fyrir hverja klst. umfram 20 klst. þar til hámarksverði er náð, sem er kr. 11.580.
Afsláttur er veittur fyrir systkini. Fyrsta barn greiðir fullt verð og skal jafnframt vera það barn sem kaupir lengsta vistun, fyrsta systkini fær 25% afslátt og næsta systkini fær 50% afslátt.
Greitt er sérstaklega fyrir mat sem nemendur fá í heilsdagsskólanum.
Foreldrar greiða fyrir heilsdagsskólann mánaðarlega. Skólarnir geta sett takmarkanir á dvöl nemenda sem ekki er greitt fyrir, t.d. að plássi sé fyrirgert í framhaldi ógreiddrar dvalar í heilsdagsskólanum. Þá getur barn ekki hafið dvöl í heilsdagsskóla á nýju skólaári nema dvalargjöld síðastliðins skólaárs séu að fullu greidd.
Dvöl í heilsdagsskóla er pöntuð hjá viðkomandi skóla. Heimilt er að takmarka aðgang að heilsdagsskólanum eftir því sem aðstæður leyfa, s.s. að húsnæði og mannskapur sé til staðar. Sú regla gildir þá að sá sem fyrr skrái sig hefur forgang að heilsdagsskólanum.
Skólar geta sett viðbótarreglur um dvöl í heilsdagsskóla. Kynnið ykkur nánar starfsreglur heilsdagsskóla í hverjum grunnskóla.
Haustið 2006 hófst þróun tómstundatilboða til barna í heilsdagsskólanum í tveimur skólum, Hraunvallaskóla og Hvaleyrarskóla. Skólaárið 2007-2008 voru tómstundatilboðin í fleiri skólum. Haustið 2008 hefur tómstundatilboðum í heilsdagsskóla fjölgað og eru þau kynnt í hverjum skóla. Greiða þarf sérstaklega fyrir þátttöku í tómstundatilboðum.
GRUNNSKÓLAR HAFNARFJARÐAR
Grunnskólar í Hafnarfirð eru niu frá hausti 2007, átta starfræktir á vegum Hafnarfjarðarbæjar og einn einkarekinn sem eru fyrir nemendur á aldrinum 6-16 ára. Nemendur í grunnskólum Hafnarfjarðar eru um 3800 og starfsmenn skólanna eru nálægt 600 (hlutastörf meðtalin) og þar af eru kennarar um 350.
Grunnskólar í Hafnarfirði eru:
Yfirstjórn grunnskóla er í höndum Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar sem er til húsa að Strandgötu 31, sími 585 5800. Netfang: skolaskr@hafnarfjordur.is. Fræðslustjóri er Magnús Baldursson (magnusb@hafnarfjordur.is) sem jafnframt er sviðsstjóri fræðslusviðs Hafnarfjarðarbæjar.
Fyrir Hafnarfjarðarbæ er í gildi skólastefna sem tók gildi árið 2005. Hér má nálgast hana: Skólastefna Hafnarfjarðar (2005).
Ýmislegt útgefið efni fræðslusviðs, s.s. eyðublöð ýmis konar, er að finna hér.
Fundagerðir |
Útgefið efni |
Gagnlegt - flýtileiðir |
|||||||||
|
|