02. október 2008
| Grunnskólamál08-09

Lækjarskóli, fyrir hönd Hafnarfjarðar, tekur þátt í jafnréttisverkefni nokkurra sveitarfélaga og Jafnréttisstofu. Í síðustu viku var vinnu- og kynningarfundur í Lækjarskóla þar sem fram fór umræða um verkefnið sem er í mótun. En í Lækjarskóla verða 9. bekkingar í aðalhlutverki við þróun þess undir stjórn Valgerðar (Vallý) Pálsdóttur...


01. október 2008
| Leikskólar

Á morgun, fimmtudaginn 2. október kl. 16.00 mun Hafnarfjarðbær taka formlega í notkun leikskólann Hamravelli við Hvannavelli 1. Leikskólinn er 4 deilda leikskóli með leik- og hvíldarstofum, framleiðslueldhúsi, sérkennslustofu, fjölnotarými og tilheyrandi þjónusturýmum. Undirbúningur að byggingu leikskólans hófst á fyrri hluta ársins 2007, Fasteignafélag Hafnarfjarðar sá um undirbúning framkvæmdanna....


01. október 2008
| Grunnskólar

Föstudaginn 3. október nk. verður Hraunvallaskóli formlega vígður. Að því tilefni verður opið hús í skólanum. Hafnarfjarðarbær býður íbúum Vallahverfis, og Hafnfirðingum öllum, í heimsókn milli kl. 15 og 17 til að skoða þessa glæsilegu byggingu og fá innsýn í það starf sem þar fer fram. Hraunvallaskóli ...


09. september 2008
| Grunnskólamál08-09

Vefur Stóru upplestrarkeppninnar er kominn í umsjá Hafnarfjarðarbæjar og var hann opnaður í síðustu viku á nýrri vefslóð, www.hafnarfjordur.is/upplestur . Það var gert á skólastjórafundi á Skólaskrifstofunni. Ingibjörg Einarsdóttir gerði það og einnig var viðstaddur Baldur Sigurðsson prófessor í HÍ, áður KHÍ, og stjórnarmaður í RÖDDUM sem heldur utan...



 

FRÆÐSLUMÁL Í HAFNARFIRÐI


Undir fræðslumál í Hafnarfirði heyra leikskólar, grunnskólar, Miðstöð símenntunar-Námsflokkar Hafnarfjarðar og Tónlistarskóli Hafnarfjarðar og skólamál yfirleitt.

Yfirstjórn skólamála er í höndum Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar sem er til húsa að Strandgötu 31, sími 585 5800. Netfang:  skolaskr@hafnarfjordur.is. Fræðslustjóri er Magnús Baldursson (magnusb@hafnarfjordur.is) sem jafnframt er sviðsstjóri fræðslusviðs Hafnarfjarðarbæjar.

Fyrir Hafnarfjarðarbæ er í gildi skólastefna sem tók gildi árið 2005. Hér má nálgast hana: Skólastefna Hafnarfjarðar (2005).

Ýmislegt útgefið efni fræðslusviðs, s.s. eyðublöð ýmis konar, er að finna hér.

 


 Fundagerðir   Útgefið efni   Gagnlegt - flýtileiðir
Skólastefna Hafnarfjarðar ( 3 Mb )
Skólavefritið
Upphaf grunnskólagöngu - 6 ára bæklingur
Ársskýrsla leikskóla ( 5 Mb )
Eyðublöð/Umsóknir
Sækja um leikskóla
Félög og forsvarsmenn þeirra


Hafnarfjarðarbær | Kennitala 590169-7579 | hafnarfjordur@hafnarfjordur.is
Ráðhúsi Hafnarfjarðar | Strandgötu 6 | 220 Hafnarfirði | Sími 585 5500 | Bréfsíma 585 5509