
Sumarið 2008 fá 14 – 16 ára unglingar vinnu við Vinnuskóla Hafnarfjarðar, þ.e. unglingar fæddir árin 1992 – 1994. Skrifstofa vinnuskólans er í húsi Hjálparsveitar skáta að Hrauntungu. Skrifstofan er opin frá kl. 9.00 til 16.00 nema frá 9. júní til loka júlí en þá er opið frá kl. 7.45 til 16.30. Sími vinnuskólans er 565-1899, netfangið
vinnuskoli@hafnarfjordur.is og veffangið
vinnuskoli.ith.is .
Rekstrarstjóri vinnuskólans er Ragna Rut Magnúsdóttir
Vinnutímabil
16 ára unglingar (fæddir 1992) hefja vinnu 9. júní og vinna til 25. júlí, eða 7 vikur alls.
15 ára unglingar (fæddir 1993) hefja vinnu 16. júní og vinna til 25. júlí, eða 6 vikur alls.
14 ára unglingar (fæddir 1994) hefja vinnu 9. júní og vinna til 25. júlí, eða 7 vikur alls.
Daglegur vinnutími: 15 og 16 ára unglingar vinna frá 8.00 – 11.30 og 13.00 – 16.00 en 8.00 – 12.00 á föstudögum. Vinnustundir á viku eru 30. 14 ára unglingar vinna aðra hverja viku fyrir hádegi og eftir hádegi hina, mánudag til fimmtudags. Fyrir hádegi er unnið frá 9.00 - 12.00 og eftir hádegi frá 13.00 - 16.00. Vinnustundir á viku eru 12
Innritun í Vinnuskólann: Umsóknareyðublöðum fyrir 14 – 16 ára hefur verið dreift í alla grunnskólum bæjarins. Þeim skal skilað útfylltum og undirrituðum af forráðamönnum og viðkomandi umsækjanda í síðasta lagi 2. maí. Umsóknareyðublöðum er skilað aftur í grunnskólana, til
þjónustuvers eða á skrifstofu Vinnuskólans fyrir þann tíma.
www.hafnarfjordur.is/vinnuskolinn
vinnuskoli.ith.is